Siðanefnd blaðamanna klofnaði 18. maí 2006 22:30
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands klofnaði í fyrsta sinn í 16 ár þegar nefndin úrskurðaði í kæru Steingríms Ólafssonar á hendur DV fyrir umfjöllun blaðsins á morðinu á Jóni Þór Ólafssyni sem fannst myrtur í El Salvador en Steingrímur er bróðir hins látna. Meirihluti siðanefndar komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið gegn 3.grein siðareglnanna.Það hefur aðeins gerst örsjaldan áður að siðanefndin klofnar í úrskurði sínum en frá upphafi hefur nefnin komist að samhljóða úrskurði í 97 prósent tilfella. Að þessu sinni voru það þau Hjörtur Gíslason, Salvör Norðdal og Sigurveig Jónsdóttir sem mynduðu meirihlutann og segir í áliti þeirra að framsetning DV á fréttinni hafi verið full glannaleg og að ekki verði séð að fréttagildi myndanna sem birtust í myndasyrpu í blaðinu hefði minnkað þótt valin hafi verið mynd þar sem líkin voru ekki í forgrunni. Þá telur meirihlutinn að DV hafi farið offari í umfjöllun sinni og ekki sýnt aðstandendum næga tillitssemi. Kemst meirihlutinn því að þeirri niðurstöðu að DV hafi brotið 3. grein siðareglna blaðamanna og að brotið sé alvarlegt. Minnihlutann kemst að annarri niðurstöðu og telur blaðið hafi ekki brotið reglur. Í þeirra áliti segir að myndirnar séu upplýsandi sem sýni lesandanum aðstæður og starfsaðferðir lögreglu í framandi landi en minnihlutann skipuðu þau Brynhildur Ólafsdóttir og Kristinn Hallgrímsson sem jafnframt er formaður.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Fleiri fréttir Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Sjá meira