Innlent

Syngjandi frambjóðandi

Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona og frambjóðandi, er í aðalhlutverki á fjörugum vinnustaðafundum F-listans í Reykjavík, syngur revíur og leiðir fjöldasöng milli þess sem Ólafur F. Magnússon flytur boðskap um bætt kjör aldraðra og flugvallarmál.

Já, það er óhætt að segja að framboðsræðurnar hennar Guðrúnar Ásmundsdóttur séu óvenjulegar en hún skipar þriðja sæti á lista Frjálslyndra og óháðra í Reykjavík. Þrír efstu menn listans mættu í hádeginu í Félagsmiðstöð aldraðra við Vitastíg og það vakti athygli okkar hvernig flokkurinn teflir Guðrúnu fram. Málefni aldraðra voru efst á baugi. Og minnt var á sérstöðu F-listans í flugvallarmálinu sem vill einn flokka halda núverandi Reykjavíkurflugvelli. Loks minntu Frjálslyndir á verndun Laugavegarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×