Dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir ýmis brot 18. maí 2006 12:51
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Ólaf Hrafn Magnússon í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, kynferðisbrot og vörslu barnakláms. Ólafur barði mann þangað til hann missti meðvitund og stakk mann í bakið á menningarnótt í fyrra . Einnig var han ákærður fyrir að hafa margoft haft samræði við stúlku sem þá var 12 og 13 ára og hafa tekið klámfengnar myndir af henni sem enduðu á Netinu. Aðfaranótt 21. ágúst 2005, á bifreiðastæði á milli Tryggvagötu og Geirsgötu 19, stakk Ólafur Hrafn mann tvívegis í bakið með hnífi. Annað stungusárið var um 2 cm langt og lá innan við neðra horn hægra herðablaðs, en hitt var um 3 cm langt og lá utan við neðra horn hægra herðablaðs, náði í gegnum brjóstholsvegginn og var 3 - 4 cm langur og jafn djúpur skurður á hægra lunga og skárust í sundur slagæðar bæði í lunga og brjóstvegg, en áverkum þessum, sem voru lífshættulegir, fylgdi mikil blæðing innvortis og féll lunga hans saman. Ólafur Hrafn er einnig dæmdur fyrir að hafa á tímabilinu frá 9. febrúar til 31. júlí 2004, á heimili sínu, í það minnsta á annan tug skipta, haft samræði við stúlku sem þá var 12 og 13 ára gömul og látið hana sleikja kynfæri sín. Eins er Ólafur Hrafn dæmdur fyrir að haft í vörslum sínum á hörðum diski í tölvu, 30 ljósmyndir af stúlkunni sem hann beitti kynferðislegu ofbeldi, einni og þeim tveimur saman, ýmist fáklæddum eða nöktum sem sýndu hana á kynferðislegan og klámfengin hátt og hafa áður dreift afritum af myndunum, eða hluta þeirra, til annarra, með þeim afleiðingum að þær ganga manna í millum á internetinu. Í niðurstöðu Héraðsdóms segir að Ólafur Hrafn sé ungur að árum og virðist hafa vilja til að taka sig á í lífinu. Þá hefur hann að hluta játað þau brot sem hann er nú sakfelldur fyrir. Á hitt ber og að líta að árás hans var að mestu tilefnislaus og hnífsstunguárásirnar ekki í neinu samhengi við það sem á undan var gengið enda þótt þær hafi átt sér stað í tengslum við átök tveggja hópa. Þegar allt framangreint er virt, og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga og jafnframt með hliðsjón af því að ákærði hefur ekki áður þurft að afplána refsingu, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 5 ár. Til frádráttar refsingunni komi gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 21. ágúst 2005 fram að dómsuppsögu með fullri dagatölu, að því er segir í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira