Matarverð í Reykjavík nær helmingi hærra en í Stokkhólmi 17. maí 2006 22:25 MYND/Sigurður Jökull
Matarkarfan í Reykjavík er nærri tvöfalt dýrari en í Stokkhólmi samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands í matvöruverslunum á Norðurlöndum. Af íbúum í höfuðborgum norrænu ríkjanna borga Oslóbúar einir svipað verð og Reykvíkingar fyrir matinn. Verðlagseftirlit Alþýðusambandsins gerði verðkönnun í öllum norrænu höfuðborgunum 9. og 10. maí þar sem athugað var verð á helstu nauðsynjum. Farið var í leiðandi matvörukeðjur á hverjum stað, annars vegar í lágvöruverðsverslun og hins vegar í stórmarkað þar sem vöruúrval er meira og þjónusta sömuleiðis. Borið var saman meðalverð þessara verslanagerða í hverju landi. Könnunin leiddi í ljós að vörukarfan í Reykjavík var dýrust og kostaði 4767 krónur en næstdýrust var hún í Noregi 4.613 krónur. Sams konar karfa kostaði um þrjú þúsund krónur í Kaupmannahöfn og Helsinki en ódýrust var hún í Stokkhólmi og kostaði um 2500 krónur. Mestu reyndist verðmunurinn á kjöti, ostum, eggjum og mjólkurvörum, öðrum en drykkjarmjólk, en minni á grænmeti og ávöxtum. Svo dæmi séu tekin kostaði kílóið af hefðbundnum brauð osti um þúsund krónur hér en um 450 krónur í Svíþjóð. Svipaða sögu var að segja af kjúklingabringum. Kílóið af þeim kostaði um 2000 krónur í Reykjavík en 750 krónur í Stokkhólmi. Lítrinn af bæði léttmjólk og nýmjólk reyndist hins vegar dýrastur í Noregi. Af þeim tuttugu vörum sem skoðaðar voru reyndist verðið ellefu sinnum hæst í Reykjavík, fjórum sinnum í Osló, þrisvar í Helsinki og einu sinni í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira