Verðbólgan hefur þrefaldast á einu ári 11. maí 2006 16:45
Verðbólga mælist nú þrefalt meiri en hún var á sama tíma í fyrra og hefur ekki mælst hærri síðan í mars 2002. Útlit er fyrir að verðbólga hækki enn.Ekkert lát virðist vera á hækkun verðbólgu sem hefur verið ofan verðbólgumarkmiða Seðlabankans í meira en tvö ár. Þróunin síðasta árið er að mestu upp á við. Verðbólgan nam tæpum þremur prósentum í maí á síðasta ári en var komin yfir þolmörk Seðlabankans í september. Síðan þá hefur hún haldist yfir þolmörkunum og mælist nú 7,6 prósent eða nær tvöfalt hærri en sem nemur þolmörkum Seðlabankans. Til einföldunar má segja að þegar verðbólga fari yfir þolmörk sé eitthvað að í hagkerfinu, enda ber Seðlabanka þá að kynna ríkisstjórn hugmyndir að aðgerðum gegn verðbólgu.Verðbólgan án húsnæðisliðs er komin í 5,4 prósent og verðbólgan því komin vel yfir þolmörk Seðlabankans þó húsnæðisliðurinn sé ekki talinn með. Þetta er í fyrsta skipti frá því snemma árs 2002 sem verðbólgan fer yfir fjögur prósent mælt með þessum hætti.Greiningardeildir Glitnis og KB banka spá níu prósenta verðbólgu frá upphafi þessa árs til loka þess en Landsbankinn sjö prósenta verðbólgu á sama tíma. Þetta þýðir að skuldabyrði vegna tíu milljóna króna verðtryggðs láns myndi aukast um sjö hundruð til níu hundruð þúsund krónur á árinu.Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er á fimmtudag í næstu viku. Þá má gera ráð fyrir að stýrivextir hækki enn frekar en nú er orðið. En þeir hafa meira en tvöfaldast á rétt rúmum þremur árum. Greiningardeild KB banka spáir stýrivaxtahækkun upp á hálft prósentustig. Glitnismenn spá 75 punkta hækkun og Landsbankinn 50 til 75 punkta hækkun.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira