Eimskip og Kiwanis gefa öllum 7 ára börnum reiðhjólahjálma 26. apríl 2006 15:31
Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin gefa öllum börnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða sérstakt átak í samvinnu Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en auki nýtur verkefnið aðstoðar Lýðheilsustöðvar. Alls verður 4.500 reiðhjólahjálmum dreift í ár og er heildarverðmæti verkefnisins um 23 milljónir kr. Segir í tilkynningu frá Eimskip. Nemendur í 1. bekk í Engjaskóla, Borgarskóla og Víkurskóla voru fyrstu börnin til að fá afhenta reiðhjólahjálma í ár en það var Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem afhenti hjálmana. "Það er skemmtilegt og hollt að hjóla. Allir verða að vera með hjálma, líka fullorðnir. Það er töff að vera með hjálm". "Eimskip leggur mikla áherslu á öryggismál í allri sinni starfsemi og vill með þessum hætti leitast við að miðla þeirri áherslu út í samfélagið," sagði Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Eimskips. "Börn þurfa sem fyrst að verða meðvituð um mikilvægi öryggis í umferðinni og við hjá Eimskip erum stolt af því að vera þátttakendur í þessu nauðsynlega verkefni" Verkefnið nýtur einnig ráðgjafar og stuðnings Herdísar Storgaard, verkefnisstjóra Árvekni-barnaslysavarna hjá Lýðheilsustöð. "Þetta er frábært tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi þess að börn noti reiðhjólahjálma rétt, en foreldrar verða að taka þátt í þessu með okkur og fylgja því eftir". Kiwanisfélagar fara í alla grunnskóla á landinu og afhenda börnunum hjálma og ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna. Að auki fá börnin fræðsluefni um rétta stillingu og notkun hjálma til að taka með sér heim. Athygli á alþjóðavettvangi Þetta árið verða þúsundir íslenskra skólabarna öruggari í umferðinni með hjálma merkta Eimskip og Kiwanis. "Það er Kiwanishreyfingunni mjög mikilvægt að fyrirtæki í landinu sýni verkefni sem þessu áhuga og stuðning," sagði Ástbjörn Egilsson, fulltrúi Kiwanishreyfingarinnar. "Þetta verkefni hefur vakið mikla athygli víðsvegar um heim og eru dæmi þess að erlendir aðilar hafi tekið það upp, meðal annars í Bandaríkjunum." Forsagan Mörg undanfarin ár, eða allt frá árinu 1990, þegar Kiwanisklúbburinn Kaldbakur á Akureyri hóf að gefa skólabörnum hjálma, hafa klúbbar víðsvegar um landið gert slíkt hið sama, hver á sínu svæði. Verkefnið hefur þá verið fjármagnað með framlagi úr styrktarsjóði eða með aðstoð ýmissa fyrirtækja. Víða um land var kominn skemmtilegur bragur á verkefnið, eins og t.d. á Akureyri þar sem efnt var til "Hjálmadags" þar sem mikið fjör og ánægja ríkti þegar börnin mættu til að taka við sínum hjálmi. Fyrir tveimur árum tók Kiwanishreyfingin höndum saman við Eimskip um reiðhjálmaverkefni á landsvísu og tókst það svo vel að það er nú í gangi þriðja árið í röð. Mikilvægi þessa verkefnis sýndi sig greinilega sumarið 2005 þegar ungur drengur á Ísafirði var við leik á línuskautum og skall með höfuðið í jörðina. Drengurinn var með hjálm. Höggið var það mikið að hjálmurinn brotnaði en þó hlaut drengurinn engan skaða af. Hjálminum sem um ræðir var dreift á vegum Kiwanis og Eimskips árið 2004.
Fréttir Innlent Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira