Innlent

Borgarstjórn Reykjavíkur felldi tillögu Ólafs F. Magnússonar

Borgarstjórn Reykjavíkur felldi tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista á fundi sínum í dag , um að horfið yrði frá brottflutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni með 14 atkvæðum allra borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og R-lista, gegn atvæði Ólafs.

Nafnakall var viðhaft við atkvæðagreiðsluna að ósk Ólafs.

Þegar niðurstaðan lá fyrir lagði Ólafur fram svohljóðandi bókun:

"Ljóst er að afstaða kjörinna fulltrúa í borgarstjórn til flugvallarins í Vatnsmýri er í litlu samræmi við þann mikla fjölda Reykvíkinga sem vill halda Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni. Annað býður þeirri hættu heim að flugvöllurinn verði lagður niður og fluttur til Keflavíkur. Það myndi hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir samgöngu- og öryggismál í Reykjavík og á landinu öllu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×