Engin rök fyrir sölu grunnnetsins hafa staðist 24. apríl 2006 17:19 MYND/Vilhelm
Engin rök ríkisstjórnarinnar fyrir því að selja grunnnet Símans með fyrirtækinu hafa staðist. Þessu hélt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, fram á Alþingi í dag. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að allir þeir ráðgjafar sem leitað hafi verið til við söluna hafi verið sammála um að réttast væri að selja Símann og grunnetið saman. Ingibjörg Sólrún sagði að rök ríkisstjórnarinnar fyrir því að að skilja ekki netið frá öðrum þjónustuþáttum Símans fyrir söluna hafi verið þríþætt: Í fyrsta lagi að þetta væri flókin og kostnaðarsöm aðgerð, í öðru lagi að það stangaðist á við lög ESB um samkeppni í rekstri grunneta, og í þriðja lagi að grunnnetið væri svo afgerandi hluti af Símanum að mun lægra verð fengist fyrir fyrirtækið ef netið væri ekki með í pakkanum. Nú sé hins vegar að koma á daginn að ekkert af þessu standist. Forsætisráðherra svaraði því til að allir þeir ráðgjafar sem leitað hafi verið til við söluna hafi verið sammála um að réttast væri að selja Símann og grunnetið saman. Þá sagði hann að viðræður ættu sér nú stað á milli Símans og Orkuveitu Reykjavíkur um samnýtingu á ljósleiðaraneti, þar sem net símans væri miklu eldra og úreltara, og kvaðst hann binda vonir við að samningar næðust þar um. Ingibjörg Sólrún var ekki sátt við svör ráðherrans og sagði ekkert nýtt hafa komið fram í svari hans. Forsætisráðherra fannst eðlilegt að ekkert nýtt kæmi fram í svari hans þar sem ekkert nýtt hafi komið fram í fyrirspurninni, og ekkert nýtt væri að frétta í málinu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira