Hámarksökutaxti leigubifreiða afnuminn 21. apríl 2006 21:59 MYND/Vilhelm
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins um að hámarksökutaxti leigubifreiða skuli afnuminn um næstu mánaðamót. Búist er við að flestar leigubílastöðvar sæki um undanþágu til þess að hafa samræmda gjaldskrá fyrir sína bíla. Samkeppniseftirlitið úrskurðaði í febrúar að gjaldskrá leigubíla skyldi gefin frjáls frá og með 1. maí næstkomandi. Taldi eftirlitið meðal annars að með reglugerðabreytingu um að höfuðborgarsvæðið og Reykjanes yrði eitt atvinnu- og gjaldsvæði fyrir leigubíla hefði opnast tækifæri á samkeppni í greininni. Þessu undi Félag íslenskra leigubifreiðastjóra ekki og taldi það óheillaspor fyrir neytendur að fella niður hámarkstaxta. Var meðal annars bent á að slík ráðstöfun hefði gefist illa í Svíþjóð og Noregi. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að samræmdir hámarkstaxtar færu gegn meginmarkmiðum samkeppnislaga og því var ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Hjalti Hafsteinsson, stjórnarmaður í Bifreiðarstjórafélaginu Frama, segir að ákvörðun áfrýjunarnefndar ákveðin vonbrigði en væntanlega muni flestar leigubifreiðastöðvar sækja um undanþágu um samræmda gjaldskrá eins og kveðið er á um í samkeppnislögum. Það sé stöðva sem hafi yfir 5 prósenta markaðshlutdeild að sækja um undanþágu og Hreyfill hafi þegar ákveðið að gera það. Hann reikni með að hinar fylgi í kjölfarið. Hjalti reiknar með að taxti leigubíla hækki eitthvað með breytingunum, í samræmi við verðlagsþróun í landinu. Hann bendir á að skortur sé á reglum um að taxti skuli vera neytendum sýnilegur í leigubifreiðum. Neytendur verði að geta gengið að honum vísum. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur boðað fulltrúa Samgönguráðuneytisins, Vegagerðarinnar, Neytendasamtakanna, Neytendastofu og hagsmunasamtök leigubílstjóra á sinn fund á miðvikudag vegna málsins. Þar verður kannað hvort menn standi frammi fyrir einhverjum vanda vegna úrskurðarins og þá hvernig leysi skuli hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira