Innlent

Fríblað Dagsbrúnar í Danmörku

Dagsbrún, sem hyggst á útgáfu fríblaðs í Danmörku, fær hundruð milljóna króna í endurgreiðslu frá danska ríkinu þar sem notast verður við dönsku póstþjónustuna við að dreifa blaðinu. Ritstjórar þeirra dagblaða, sem nú eru á markaði, eru sannfærðir um að þeir muni standa af sér íslensku samkeppnina.

Það örlar á geðvonsku í skrifum blaðamanna danska viðskiptablaðsins Börsen, sem gera áætlunum Dagsbrúnar, móðurfélags Fréttablaðsins og NFS, um danskt fríblað skil. Þei ræða sérstaklega um dreifingu blaðsins, sem danski pósturinn mun að hluta til sjá um.

Samkvæmt dönskum lögum fá þeir sem gefa út dagblöð endurgreiðslu á póstdreifingu.

Fyrirsagnir Börsen er á þá leið að með fríblaðinu muni Íslendingar sópa milljónum úr danska ríkiskassanum.

Sagt er að ef Dagsbrún deifi 500 þúsund blöðum inn á dönsk heimili, og pósturinn sjái um helming dreifingar, þýði það að danska ríkið greiði fyrirtækinu 60 milljónir danskra króna til baka, eða um 730 milljónir íslenskra króna.

Sérstaklega er tekið fram að það sé erfitt fyrir samkeppnisaðila Dagsbrúnar að fetta fingur út í greiðslurnar, þar sem önnur dagblöð eins og Berglinske Tidende hafi fengið ríkulega endurgreiðslu af sömu ástæðu.

Stefnt er að því að breyta reglunum á næstu ári, þannig að endurgreiðsla vegna hvers blaðs nemi ekki hærri upphæð en um 180 milljónum íslenskra króna.

Hins vegar er varað við því að Dagsbrún geti gefið út blöð fyrir hvert sveitarfélag með ólíkum heitum, eða snúið á kerfið og fái því hærri greiðslur.

Áætlanir Dagsbrúnar, um að ryðja sér rúms á dönskum dagblaðamarkaði, eru einnig bornar undir ritstjóra Politiken og Berglinske Tidende. Niels Lunde, aðalritsjóri Berlingske , er vantrúaður á að verkefnið, bæði hvað varðar dreifingu og það að um 100 blaðamenn verði ráðnir til að skrifa í fríblað. Hann segir þó ljóst að ritstjórn Berglinske, sem selt er í áskrift, þurfi að aðlaga sig breytingum á markaði. Gæðin þurfi að auka svo Danir hafi enn áhuga á að greiða sérstaklega fyrir blöð í áskrift.

Töger Seidenfaden hjá Politiken, er síður en svo áhyggjufullur og segist fagna samkeppninni.

Danir hafi nú þegar úr mörgu að velja, nýtt blað Dagsbrúnar hafi lítið að segja enda hafi Politiken sérstöðu. Helst á hann von á að auglýsingasala gæti minnkað.

Fyrir á markaði eru tvö fríblöð í Danmörku sem koma út daglega, Urban og Metro Express. Þau sækir fólk við biðskýli eða fær þau afhent hjá blaðburðarfólki sem er við fjölfarnar götur.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×