Dagsbrún fær 730 milljóna endurgreiðslu frá danska ríkinu 17. apríl 2006 13:00
Dagsbrún, sem hyggur á útgáfu fríblaðs í Danmörku, fær um 730 milljónir íslenskra króna endurgreiðslu frá danska ríkinu þar sem notast verður við dönsku póstþjónustuna við að dreifa blaðinu. Ritstjórar þeirra dagblaða sem nú eru á markaði segja ljóst að þeir munu þurfa að gera breytingar á blöðunum til að standa af sér íslenskættuðu samkeppnina. Danska viðskiptablaðið Börsen gerir áætlunum Dagsbrúnar, móðurfélags Fréttablaðsins og NFS, um danskt fríblað ítarleg skil. Þar er sérstaklega rætt um dreifingu blaðsins, sem danski pósturinn mun sjá um. Ef Dagsbrún dreifir 500 þúsund blöðum inn á dönsk heimili þýðir það að ríkið greiðir fyrirtækinu 60 milljónir danskra króna til baka, eða um 730 milljónir íslenskra króna, lögum samkvæmt vegna þess að fyrirtækið notast við póstdreifingu. Svona hafa reglurnar verið en munu breytast á næsta ári og verður þá þak sett á greiðslurnar. Áætlanir Dagsbrúnar, um að ryðja sér til rúms á dönskum dagblaðamarkaði, eru bornar undir ritstjóra Politiken og Berglinske Tidende. Niels Lunde, aðalritsjóri Berlingske, segir ljóst að ritstjórn blaðsins, sem selt er í áskrift, þurfi að aðlaga sig breytingum á markaði. Gæðin þurfi að auka svo Danir hafi enn áhuga á að greiða sérstaklega fyrir Berglinske Tidende. Töger Seidenfaden hjá Politiken er síður en svo áhyggjufullur og segist fagna samkeppninni. Danir hafi nú þegar úr mörgu að velja, nýtt blað Dagsbrúnar hafi lítið að segja enda hafi Politiken sérstöðu. Helst á hann von á að auglýsingasala gæti minnkað. Fyrir á markaði eru tvö fríblöð í Danmörku sem koma út daglega, Urban og Metro Express. Þau sækir fólk við biðskýli eða fær þau afhent hjá blaðburðarfólki sem er við fjölfarnar götur.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira