Innlent

Verður að búast við því versta

MYND/Þorvaldur Ö. Kristm.

Í gær sinntu björgunarsveitir fimm hjálparbeiðnum, þar af þremur vegna vélsleðamanna. Vélsleðamaður sem NFS talaði við segir afar mikilvægt að búa sig undir það versta til þess að láta breyttar veðuraðstæður ekki koma sér í opna skjöldu. Ávallt skuli taka með sér meiri föt en þörf sé á í góðu veðri í upphafi ferðar og aukanesti, jafnvel þó ætlunin sé bara að fara í örstutta ferð.

Mikið hefur mætt á björgunarsveitarfólki í páskafríinu enda er þetta yfirleitt einn mesti ferðatími vorsins. Þá eykst örtröðin enn þegar sól skín á fjöllum og nægur snjór er til að þeysa um á vélsleðum.

Að fara á fjöll er góð skemmtun. En við búum á Íslandi þar sem skjótt skipast veður í lofti og það sem á bara að verða skemmtilegur skreppitúr í glaðasólskini getur hæglega breyst í þrautagöngu um heljarslóð. Það verður seint fullbrýnt fyrir fólki að búa sig vel fyrir útivist og fjallaferðir.

Að sögn Ríkarðs Sigmundssonar, vélsleðamanns og félaga í Landssambandi íslenskra vélsleðamanna, verður alltaf að búast við því versta. Fyrst og fremst verður fólk að vera vel klætt, og helst með aukaföt ef veðurhorfur breytast til hins verra. Til þess að kunna fótum sínum forráð verður ferðafólk að hafa nauðsynlega fylgihluti: kort, og gps eða áttavita, kunna að nota búnaðinn sinn og hafa aukabatterí í öll raftæki. Fjarskiptatæki eru nauðsynleg ef eitthvað kemur upp á, talstöðvar og NMT-símar eru enn sem komið er betri en gemsinn. Og snjóflóðaýlar eiga að vera skylda í öllum vetrarferðum.

 

 

Ríkarður segir mikilvægt að gera sér grein fyrir því að þegar komið er upp á jökul eru menn oftast komnir upp í 600-800 metra hæð og því veðuraðstæður gjörólíkar því sem fólk á að venjast á láglendi, jafnvel allt önnur árstíð en í höfuðborginni. Að auki sé varasamt að treysta um of á góða veðurspá, þó vissulega sé mikilvægt að kíkja á veðurspána og hafa hana í huga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×