Þúsund ára jarðhýsi í Garðabænum 15. apríl 2006 20:00
Fornleifafræðikústar og -múrskeiðar fengu síðasta tækifærið í dag til að fletta hulunni af miðaldarústum í Akralandi í Garðabæ. Stórvirkari vinnuvélar taka nú við og reisa þar framtíðarbyggð nútímamanna. Uppgröfturinn á Virkishóli í Akralandi lætur ekki mikið yfir sér en ef vel er að gáð má sjá útlínur lítils mannvirkis. Þetta er jarðhýsi sem var líklega fyrst byggt öðru hvoru megin við árið 1000 í landi Arnarness.Síðan var hætt að nota skúrinn og fauk ofan af honum og þannig stóðu tóftirnar þar til aftur var byggt ofan á þær á fimmtándu öld. Jarðhýsið tengist líklega miklum mógröfum sem voru í margar aldir, allt fram á miðja tuttugustu öld, í mýrinni neðst í Akralandinu. Líklega hafa menn þó ekki dvalið í jarðhýsinu næturlangt heldur líklega reykt þar úr einni pípu eða svo og borðað nesti. Í rústunum hafa fundist krítarpípur og glerbrot en engir aðrir munir.Í næstu viku skríða kranarnir og aðrar stórvirkar vinnuvélar yfir þennan blett líka, en þá verður búið að kortleggja fortíð þessara minja. Ragnar Edvardsson fornleifafræðingur, sem stjórnaði uppgreftrinum í dag, segir algengt að fornleifafræðiuppgreftir af þessu tagi séu á síðustu stundu áður en byggt er á svæði. Hann sagði þó að yfirleitt næðist að klára verkefni áður en tíminn væri á þrotum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Sjá meira