Á þriðja hundrað björgunarmenn tóku þátt í leitinni 14. apríl 2006 18:39
Á þriðja hundrað björgunarmenn leituðu í nótt og í morgun að mönnunum tveimur sem villtust á Langjökli. Gríðarlegur búnaður var notaður við leitina sem alls tók ellefu klukkustundir. Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út um klukkan ellefu í gærkvöld en þá voru liðnir fjórir tímar frá því mennirnir áttu að vera komnir á áfangastað. Alls tóku tvö hundruð manns þátt í leitinni frá björgunarsveitum í Húnavatnssýslu, Skagafirði, Borgarfirði, Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Eyjafirði, Snæfellsnesi og af höfuðborgarsvæðinu. Byrjað var að leita mannanna í neyðarskálanum á Hveravöllum, í Þjófadölum og í Fjallkirkju. Þegar í ljós kom að mennirnir voru ekki á þessum stöðum var byrjað að leita á suðurhluta Langjökuls þaðan sem þeir höfðu lagt af stað. Alls voru tíu snjóbílar, sextíu vélsleðar og tvær þyrlur, TF LÍF Landshelgisgæslunnar og þyrla varnarliðsins notaðar við leitina. Jón Ingi Sigvaldason, í leitarstjórn Landsbjargar, segir aðstæður hafa verið mjög erfiðar vegna þess hve gríðarlega stórt svæði var um að ræða. Þá var niða myrkur þegar leit hófst sem auðveldaði ekki björgunarsveitum - ekki frekar en slæmt fjarskiptasamband uppi á hálendinu. Þá var kölluð til flugvél flugmálastjórnar sem flaug um svæðið með endurvarpa fyrir talstöðvar Landsbjargarmanna. Eftir mikla og stranga leit, fundust vélsleðar mannanna í Hallmundarhrauni snemma í morgun en mennina sjálfa var þó enn hvergi að finna. Leitarsvæðið var þrengt og slóð vélsleðanna fylgt. Kallaðir voru út sex leitarhundar til viðbótar og eftir nokkrar klukkustundir fann þyrla Varnarliðsins mennina loksins, heila á húfi undir Eiríksjökli. Þá höfðu mennirnir yfirgefið sleðana og gengið nánast alla nóttina, þrátt fyrir að vera ekki vel tækjum búnir, hvorki með gsm síma né GPS staðsetningartæki. Þeir voru þó ágætlega vel klæddir og því ekki kaldir. Mennirnir voru fluttir með björgunarsveit til Borgarness þar sem tekin var af þeim skýrsla. Þeir eru nú komnir til síns heima.
Mest lesið Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Sjá meira