Fjársöfnun hafin fyrir dómsmál gegn ríkinu 13. apríl 2006 12:30
Áhugahópur um verndun Þjórsárvera hefur hafið fjársöfnun vegna dómsmáls sem hópurinn rekur gegn Landsvirkjun og stjórnvöldum. Gjafsókn fæst ekki, en lagaákvæði um gjafsókn var breytt á meðan umsókn frá hópnum lá fyrir hjá gjafsóknarnefnd. Á vorþingi árið 2005, eða um það leiti sem dómsmálið var í fullum undirbúningi, var felld niður heimild til gjafsóknar í málum þar sem einstaklingar vilja sækja rétt sinn gagnvart stórum fyrirtækjum eða stjórnvöldum. Hópurinn hafði lagt inn umsókn um gjafsókn og byggði umsókn sína á umræddu ákvæði en umsókninni var síðan hafnað. Hópurinn rekur nú mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en þess er krafist að mat á umhverfisáhrifum Norðlingaölduveitu og úrskurður Jóns Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, verði felldur úr gildi. Hópurinn hefur hafið fjársöfnun fyrir málarekstrinum en fari málið til hæstaréttar þá gæti málskostnaður orðið allt að þrjár milljónir króna. Katrín Theódórsdóttir, lögmaður hópsins segir að umhverfismál séu oft flókin og viðamikil og jafnframt kostnaðarsöm. Hún segir að lagabreyting um gjafsókn takmarki því möguleika einstaklinga til að höfða mál gegn ríkinu. Á sama hátt megi segja að stjórnvöld séu að greiða götu sína fyrir framkvæmdir sem þessar, þar sem ólíklegt er að einstaklingar leggi í málaferði gegn ríkinu eftir breytinguna á lagaákvæðinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira