Innlent

Skafrenningur og hálka er víða á þjóðvegum landsins

Skafrenningur og hálka er víða á þjóðvegum landsins. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, hálkublettir eru á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er verið að moka yfir Klettsháls og hálka og hálkublettir eru víða á heiðum. Á Norðurlandi er einnig hálka, hálkublettir og éljagangur. Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka, snjóþekja og éljagangur en greiðfært er á Suður- og Suðausturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×