Stjórmálaflokkar koma til með að slá met í auglýsingum 11. apríl 2006 22:29 MYND/Róbert
Búist er við því að stjórnmálaflokkar hér á landi slái met í útgjöldum til auglýsinga fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þjóðahreyfingin hefur skorað á alla stjórnmálaflokka að auglýsa ekki í ljósvakamiðlum fyrir komandi kosningar til að knýja á um að lög eða samkomulag verði gert um auglýsingar stjórnmálaflokka. Bréf þessa efnis hefur verið sent á formenn allra stjórnmálaflokka hér á landi. Í bréfinu segir að sífellt sé meira fé varið í pólitískar auglýsingar fyrir kosningar. Þjóðarhreyfingin telur að þetta hafi í för með sér augljósar hættur og sé til þess fallið að grafa undan lýðræðinu og trú kjósenda á stjórnmálum og stjórnmálaflokkum. Hans Kristján Árnason, einn af forsvarsmönnum Þjóðarhreyfingarinnar, segir Ísland eina landið í Evrópu sem hvorki hafi lög né flokkarnir sjálfir gert samkomulag um hvernig staðið skuli að auglýsingum í ljósvakamiðlum. Í Bretlandi sé hámark á því hvað hver flokkur geti notað af fjármagni í auglýsingar fyrir þingkosningar. Ef sama hlutfall væri notað hér á landi þá væri hámark á hvern flokk 12 milljónir. Hans segir stjórnmálaflokka á Íslandi nota mun meiri upphæðir í auglýsingar. Þetta komi niður á innihaldi málefna og auglýsingar fari að snúast um ímyndir en málefnin verði undir. Hans segir ljóst að erfitt sé fyrir fólk sem ekki hefur mikið fjármagn að koma sínu á framfæri. Hans segir erfitt að átta sig á hver viðbrögð flokkanna verði við áskoruninni. Ástæða þess að því sé eingöngu beint til stjórnmálaflokka að auglýsa ekki í ljósvakamiðlum sé sú að þar sé um takmörkuð gæði að ræða. Það eru ekki allir sem geti rekið sjónvarpsstöð þar sem það sé leyfum háð en annað gildi til dæmis um dagblöð. Þjóðarhreyfingin vonast til að breyting verði á núverandi fyrirkomulagi. Jafnframt að þessi áskorun verði til þess að vekja almenning í landinu til umhugsunar um fjármál flokkanna og velta betur fyrir sér þeim auglýsingum sem birtast og hvaðan fjármagnið fyrir þeim kemur. Á fundinum kom fram að búist sé við því að öll met verði slegin í kostnaði við auglýsingar stjórnmálaflokkanna í ár. Hans segir mikilvægt að þeir sem beri ábyrgð á flokkunum komi sér saman um reglur varðandi auglýsingar því með núverandi fyrirkomulagi sé verið að grafa undan lýðræðinu.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira