Samið um leigu á 800 fermetra húsnæði til 20 ára 11. apríl 2006 19:45 Jón Gíslason forstjóri landbúnaðarstofnunar t.v. Guðni Ágústsson og Birgir Guðmundsson frá Merkiland við undirritun leigusamningsins. MYND/sudurland.net-Ólafur
Starsfemi höfuðstöðva Landbúnaðarstofnunar á Selfossi flyst í nýtt 800 fermetra húnsæði á haustdögum. Leigusamningur til næstu 20 ára var undirritaður við eignarhaldsfélagið Merkiland í dag. Jafnframt var undirritaður samstarfssamningur við ráðgjafafyrirtækið Hið íslenska ráðgjafahús um aðstoð við stefnumótun og rekstur nýrrar stofnunar. Kynningafundur um starfsemina var haldinn á Selfossi í dag. Jón Gíslason forstjóri stofnunarinnar skýrði frá tilgangi stofnunarinnar og meginmarkmiðum. Landbúnaðarstofnun hóf störf um áramótin en höfuðstöðvar voru fluttar á Selfoss 1. apríl. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði það vera merk tímamót að stofnunin tæki til starfa á Selfossi. "Það er mikið hagsmunamál fyrir byggðirnar og landbúnaðinn að stofnunin verði öflug, til að geta tekið við mikilvægum málum á sviði, eftirlits, stjórnsýslu og rannsókna," sagði Guðni. Til bráðabirgða er yfirstjórn stofnunarinnar að Austurvegi 10. Nú hefur hins vegar verið undirritaður leigusamningur við eignarhaldsfélagið Merkiland um framtíðarhúsnæði fyrir höfuðstöðvar stofnunarinnar að Austurvegi 64 á Selfossi. Það húsnæði er í byggingu og verður afhent í september 2006. Þá hefur Landbúnaðarstofnun umdæmisskrifstofur um allt land og þar starfa héraðsdýralæknar, auk þess sem inn- og útflutningseftirlit er staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Haustið 2006 verða starfsmenn stofnunarinnar á Selfossi um 30 og svipaður fjöldi starfar við umdæmisskrifstofur og eru starfsmenn því samtals um 60 talsins. Um það bil 50 störf flytjast til úr ýmsum deildum sem færast nú undir starfsemi stofnunarinnar.Fjölþætt verkefniJón Gíslason forstjóri landbúnaðarstofnunar t.v. og Kristján Vigfússon frá Hinu íslenska ráðgjafahúsiMYND/sudurland.net-ÓlafurMeð stofnun Landbúnaðarstofnunar hafa embætti Yfirdýralæknis, Aðfangaeftirlits, Veiðimálastjóra og Yfirkjötmats verið sameinuð á einum stað, auk verkefna sem flytjast til stofnunarinnar frá landbúnaðarráðuneytinu, Landbúnaðarháskóla Íslands og Bændasamtökum Íslands. Verkefni þessi eru á sviði heilbrigðis dýra og dýraverndar, matvælaeftirlits, kjötmats, eftirlits með fóðri, áburði og sáðvöru, plöntusjúkdóma, lax- og silungsveiði og fiskeldis. Þá fer Landbúnaðarstofnun með verkefni vegna lífrænnar framleiðslu landbúnaðarafurða og stjórnsýslu vegna búfjárafurða og búfjáreftirlits. Verkefni stofnunarinnar eru því fjölþætt. Nýtt stjórnskipulagLandbúnaðarráðherra hefur sett reglur um starfsemi og innra stjórnskipulag Landbúnaðarstofnunar. Nýtt stjórnskipulag tók gildi 1. apríl s.l. og fara tvö fagsvið með eftirlitsmál, þ.e. dýraheilbrigðissvið og matvæla- og umhverfissvið, og síðan eru tvö stoðsvið sem fara annars vegar með stjórnsýslu og hins vegar með rekstur og þjónustu. Þar við bætast 14 umdæmisskrifstofur. Skipurit Landbúnaðarstofnunar má sjá í fylgiskjali hér með fréttinni og er það byggt á þeim reglum sem settar hafa verið um starfsemi hennar. Stefnumótun og árangursstjórnunÁ þessum tímamótum, þegar fjölþætt verkefni eru sameinuð í nýrri stofnun, telja stjórnvöld brýnt að móta stefnu í störfum, setja mælanleg markmið, skilgreina verkferla og koma á virkri starfsmannastefnu. Til að aðstoða stofnunina við þessi verkefni hefur verið gerður samningur við Hið íslenska ráðgjafahús. Stefnt er að því að þetta verkefni verði komið vel á veg árið 2007 og að þá verði gerður árangursstjórnunarsamningur við landbúnaðarráðuneytið.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira