Gera ekki kröfu um annað sætið 8. febrúar 2006 08:15 MYND/Vilhelm
Konurnar sem komu næstar á eftir Önnu Kristinsdóttur í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík gera ekki kröfu um annað sætið. Það lítur því út fyrir að tveir karlmenn leiði lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Anna Kristinsdóttir sóttist eftir að leiða listann en hafnaði í öðru sæti í prófkjörinu og hefur hún ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista flokksins. Óskar Bergsson sem sóttist einnig eftir fyrsta sætinu hafnaði í því þriðja. Bindandi kosning var aðeins í tvö efstu sætin en uppstillinganefnd tekur ákvörðun um endanlega lista. Ef að allir á listanum verða færðir upp um eitt sæti færist Óskar í annað sætið en hann hefur þó ekki gefið út hvort hann taki sæti á listanum. Ef svo fer að Óskar verður í öðru sæti þá verða það tveir karlmenn sem leiða listann en Björn Ingi Hrafnsson hafnaði í fyrsta sæti. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir það Framsóknarfélaganna sjálfra að taka ákvarðanir um uppröðun á listum. Hins vegar hafi það verið skilyrði að á listum flokksins skipti konur tvö efstu sætin af fjórum. Þær konur sem höfnuðu í fjórða og fimmta sæti prófkjörsins gera ekki kröfu um að kona verði í öðru sæti. Marsibil Sæmundardóttir sem hafnaði í fjórða sæti segir að flottara hefði verið að sjá konu og karl í tveimur efstu sætunum en reglurnar kveði hins vegar ekki á um það. Í sama streng tekur Ásrún Kristjánsdóttir sem hafnaði í fimmta sæti í prófkjörinu en hún telur eðlilegt að listinn færist upp í heild og Óskar taki annað sætið enda sé hann vel að því kominn.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira