Stúdentakosningar í HÍ í dag og á morgun 8. febrúar 2006 08:00 MYND/Hari
Stúdentar við Háskóla Íslands velja í dag og á morgun nýja fulltrúa til þess að gæta hagsmuna sinna næsta árið. NFS leit við á kosningaskrifstofum tveggja fylkinga í gærkvöld þar sem frambjóðendur og sjálfboðaliðar unnu enn hörðum höndum. Síðastliðið ár í stúdentapólitíkinni hefur verið nokkuð óvenjulegt miðað við árin á undan. Engin fylking hefur haft hreinan meirihluta heldur hafa þrjár fylkingar deilt völdum, en Háskólalistinn sem komst í oddastöðu í síðustu kosningum hefur haft embætti formanns Stúdentaráðs þrátt fyrir að hafa aðeins tvo fulltrúa af tuttugu. Það var í nógu að snúast á skrifstofu Röskvu að Austurstæti 14 í gærkvöld enda mikið í húfi fyrir þá fjölmörgu sem starfað hafa að kosningabaráttunni. Dagný Ósk Aradóttir, sem er í fyrsta sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs,segir stúdenta mikilvægt þrýstiafl í þjóðfélaginu.Röskvu finnist því kosningarnar snúast um það hvert hlutverk Stúdentaráðs eigi að vera. Röskva telji ráðið eiga að vera algerlega órhætt við að berjast bæði gegn Alþingi og stjórnvöldum og líka innan Háskólans. Standa eigi vörð um hagsmuni stúdenta á öllum vettvöngum. Hinum megin á Austurvelli voru Vökuliðar einnig önnum kafnir enda ljóst að baráttan verður hörð. Vaka leggur meiri áherslu á baráttuna innan skólans . Harald Björnsson, sem situr í fyrsta sæti á lista Vöku til Stúdentaráðs, segir þetta mikilvægara en að leita út og breyta Stúdentaráði í Litla-Alþingi þar sem menn tjái sig um hluti sem komi háskólanemum ekki við sem háskólanemum. Stúdentar við HÍ eigi aðeins eitt sameiginlegt og það sé að vera nemendur í skólanum. Háskólalistinn hefur ekki verið með eiginlega kosningaskrifstofu en baráttumál fylkingarinnar er að Stúdentaráð verði sterkari málsvari stúdenta. Fjölnir Guðmannsson, fyrsti maður á lista Háskólalistans til Stúdentaráðs, segir listann telja að það sé auðveldast að gera með því að taka upp einstaklingskosningar vegna þess að þegar fólk starfi innan fylkinga starfi það alltaf að hagsmunum stúdenta með hliðsjón af því hvað henti fylkingunni best fyrir næstu kosningar. Þá sé líka hætta á því að Stúdentaráð komi fram sem klofið afl. Um 9300 stúdentar eru á kjörskrá og verða kjördeildir opnar í flestum byggingum Háskólans bæði í dag og á morgun.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira