Innlent

Ófært um Ólafsfjarðarmúla

Ófært er um Ólafsfjarðarmúla vegna óveðurs, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Víða um land er hálka, snjóþekja eða hálkublettir.

Snjóþekja eða hálka er í uppsveitum Árnessýslu. Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á Holtavörðuheiði og víða á Snæfellsnesi. Snjóþekja er víða á Vestfjörðum. Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði og hálka á Lágheiði. Hálka eða snjóþekja er víða á Norðaustur- og Austurlandi. Hálka er víða á Suðausturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×