Húsnæði fyrir starfsemi í Heilsuverndarstöðinni enn ófundið 3. janúar 2006 16:00 MYND/E.Ól
Enn er ekki búið að finna húsnæði fyrir þá starfsemi heilsugæslunnar sem fram fer í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg, en átta mánuðir eru þar til húsið verður afhent nýjum eiganda. Forstjóri Heilsugæslunnar hefur miklar áhyggjur af málinu. Eins og greint var frá í fréttum fyrir áramót var húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar selt eftir áralangar deilur ríkis og borgar um nýtingu hússins, en borgin átti 60 prósent í því og ríkið 40 prósent. Ekki er enn búið að finna nýtt húsnæði fyrir starfsemina en Guðmundur Einarsson, forstjóri Heilsugæslunnar, segir að verið sé að vinna að gerð húslýsingar og í framhaldinu verði auglýst eftir húsnæði. Guðmundur segir starfsemina nú vera í um 3200 fermetrum en þörfin sé um fjögur þúsund fermetrar. Hann segir heilbrigðisráðherra hafi lagt áherslu á að efla heilsugæsluna og færa til hennar starfsemi sem mundi ganga betur þar. Til dæmi sé verið að auka þjónustu við fólk með geðheilbrigðisvanda utan sjúkrahúsa. Því hefur verið haldið fram að húsnæðið Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg hafi ekki hentað fyrir starfsemina. Guðmundur segir það alls ekki rétt. Það sé þó misjafnt eftir því hvar menn séu í húsinu. Húsið þarfnist endurbóta en þær séu ekki miklar. Hann bendir á að húsnæði Miðstöðvar mæðraverndar, sem sé stræsta klíníska einingin í Heilsuverndarstöðinni, sé að hans mati eins gott og það geti orðið Auk þessamissirMiðstöð heimahjúkrunar, sem heyrir undir heilsugæsluna húsnæði sitt í vor. Guðmundur segir að forsvarsmenn heilsugæslunnar hefðu haft áhuga á að flytja þá starfsemi í Heilsuverndarstöðina í vannýtt húsnæði en ljóst sé að svo verði ekki. Og hann hefur áhyggjur af málinu þar sem lítill tími er til stefnu. Heilsugæslan geri eins og hún geti og heilbrigðisráðuneytið styðji hana við að finna húsnæði og leysa málið í tæka tíð. Þetta sé engu að síður stórkostlegt áhyggjuefni. Aðspurður hvort hann telji að það hafi verið mistök að selja húsið segir Guðmundur að það sé ekki hans að segja um það.
Fréttir Innlent Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira