Nýtt kerfi langdrægara en NMT 3. janúar 2006 13:35 Fleiri en eitt símafyrirtæki geta boðið upp á nýja langdræga farsímakerfið sem tekur við af NMT árið 2008. MYND/Valli
Stjórnvöld hafa ákveðið að framlengja líftíma NMT-farsímakerfisins um tvö ár. Stefnt er að því að nýtt, fjölhæfara og jafnvel langdrægara kerfi verði komið í noktun áður NMT-farsímakerfið verður lagt niður. Forsvarsmenn Símans tilkynntu Póst- og fjarskiptastofnun fyrir nokkru að þeir hygðust leggja niður langdræga NMT farsímakerfið um næstu áramót. Nú hefur stjórn Póst- og fjarskiptastofnunar hins vegar ákveðið að nýta sér heimild sína í leyfi Símans til reksturs NMT-farsímakerfis til að framlengja líftíma kerfisins um tvö ár. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir ástæðuna fyrir því að heimildin var nýtt þá að stofnunin vildi tryggja samfellu í langdrægum farsímasamskiptum. Útlit sé fyrir að tilraunir með nýtt langdrægt farsímakerfi hefjist á næsta ári og að það verði tekið í notkun á næsta ári. Hann segir að það kerfi verði í það minnsta jafn langdrægt og NMT-kerfið en að auki sé það mun betra kerfi en NMT-kerfið þegar litið er til gagnaflutninga. Það er tvenns konar tækni sem kemur til greina sem arftaki NMT-farsímakerfisins en bæði verða send út á 450 Megaherza kerfinu hefur verið notað fyrir rekstur NMT-farsímakerfisins. Annar valkosturinn er GSM 450. Helstu kostir þess kerfis eru að það er tiltölulega ódýrt í uppbyggingu og hægt er að nota fyrirliggjandi búnað. Hinn kosturinn er CDMA. Það er öflugra en GSM 450 og í talsverðri sókn erlendis meðan útbreiðsla GSM 450 hefur verið takmörkuð.
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Sjá meira