Enn vex hlaupið í Skaftá 22. apríl 2006 18:42
Hlaupið í Skaftá vex mjög hratt og er rennslið nú komið í tæpa 390 rúmmetra á sekúndu en búast má við að það fari í um 1400 rúmmetra þegar hlaupið nær hámarki í nótt eða fyrramálið. Rennslið hefur þrefaldast frá því hlaupið hófst í gærkvöldi.Vatnshæðamælir hefur verið rekinn í Skaftá frá því árið 1955 og síðan mælar voru fyrst settir upp hefur komið hlaup í ánna nokkurn veginn árlega að meðaltali. Hlaupin hafa verið misstór eftir því hvort hlaupið hefur úr eystri eða vestari Skaftárkatli en katlarnir eru staðsettir á Vatnajökli, norð-vestan við Grímsvötn. En skoðum aðeins hvað er gerast undir jöklinum.Varmi sem kemur úr kvikuhólfi í berggrunni jökulsins,á um það bil eins og hálfs kílómetra dýpi bræðir ísinn neðan frá og myndar stöðuvatn undir ísmassanum. Þegar vatnshæðin er orðin nógu mikil þá lyftir vatnið ísmassanum og vatnið hleypur undan jöklinum.Hlaupsins varð fyrst vart um klukkan 6 í morgun og hefur verið í örum vexti í allan dag. Þar sem hlaupið er úr stærri katlinum, það er að segja þeim eystri þá er allt útlit fyrir að það verði enn stærra en búast má við að hlaupið nái hámarki í nótt eða fyrramálið. Síðast var hljóp Skaftá í ágúst í fyrra en þá úr vestari katlinum.Samkvæmt mælum Vatnamælinga Orkustofnunar var rennslið í Eldvatni við Ása komið í tæpa 390 rúmmetra á sekúndu sem er litlu meira en rennsli Þjórsár. Til að átta sig á hversu mikill vöxtur þetta er þá er rétt að geta þess að rennslið í Eldvatni var rúm 125 rúmmetrar í gærmorgunn svo það hefur þrefaldast á síðusta sólarhring. Sérfræðingar í Skaftárhlaupum eiga allt eins von á því að rennslið í hlaupinu fari í 1.400 til 1.500 rúmmetra þegar það nær hámarki. Vatnshæð Skaftár við Kirkjubæjarklaustur er nú orðin rúmir 2 metrar sem þýðir að hún hefur hækkað um tæpa 80 sentimetra frá því í fyrradag. Hlaupið rennur niður í Skaftárósa og niður Kúðafljót til sjós og hafa Almannavarnir varað fólk við að vera á ferðinni nærri upptökunum vegna hættu á brennisteinsmengunFyrstu merki um eitrun af völdum brennisteinslofttegunda eru ógleði en brennisteinsvetni er afar sterkt eitur og jafnast alveg á við blásýru og því betra að fara varlega.
Fréttir Innlent Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira