Vesturportsprinsessa fædd 30. desember 2006 09:00 Gísli Örn nefndi dóttur sína eftir systur sinni, Rakel Garðarsdóttur.
Vesturportsparinu Gísla Erni Garðarssyni og Nínu Dögg Filippusdóttur fæddist lítil stelpa á fimmtudaginn, en hún er fyrsta barn þeirra hjóna. Prinsessan hefur hlotið nafnið Rakel María, og heitir þar með í höfuðið á föðursystur sinni, Rakel Garðarsdóttur sem er framkvæmdastjóri Vesturports. Rakel var að vonum stolt af nöfnu sinni og sagði alla vera við hestaheilsu þegar Fréttablaðið náði tali af henni í gær, en hún var þá búin að heilsa upp á splunkunýja frænku sína. „Hún er bara lítil, sæt stelpa. Falleg og eiturhress,“ sagði hún sposk. Rakel María var einar 16 merkur þegar hún kom í heiminn. „Þetta er stór og stæðileg stelpa,“ sagði Rakel hin eldri. „Það eru náttúrulega allir í skýjunum með þetta, eins og alltaf þegar börn fæðast. Það er voða sjaldan eitthvað annað í gangi,“ bætti hún við. Nína Dögg hefur haft hægt um sig að undanförnu, og dvaldist til dæmis heima við á meðan Vesturport lagðist í leikleiðangur um Evrópu. Í síðasta afkvæmi Vesturports, kvikmyndinni Börnum, fór Nína Dögg hins vegar á kostum í hlutverki fjögurra barna móður og hefur því einhverja reynslu af hlutverkinu sem hún spreytir sig nú á í veruleikanum.
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Fleiri fréttir Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sjá meira