Aldursmerkingu á myndum og leikjum breytt 30. júní 2006 08:00 MYND/Valgarður
Aldursmerkingar á kvikmyndum, sjónvarpsefni og tölvuleikjum taka breytingum nú um mánaðmótin þegar ný lög um eftirlit með aðgengi barna að þessu efni taka gildi. Framleiðendur og dreifendur munu þá sjálfir merkja efnið á viðeigandi hátt en Barnaverndarstofa sinnir eftirliti vegna þess. Þann 1. júlí heyrir Kvikmyndaskoðun sögunni til en hún hefur hingað til skoðað myndir sem ætlaðar eru til sýningar eða dreifingar hér á landi. Um leið verður nýtt kerfi tekið í notkun sem gerir ráð fyrir að framleiðendur og útgefendur mynda og tölvuleikja verði ábyrgir fyrir aldursmerkingum. Samtök myndréttarhafa á Íslandi munu sjá um að innleiða kerfið en fyrirmynd þess er sótt til Hollands. Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS, segir Hollendinga hafa komið upp kerfi sem barnasálfræðingar og aðrir fagaðilar sem vinni með börn hafi hannað ásamt fræðimönnum. Það hafi reynst gífurlega vel. Hver og einn sem gefi út mynd skrá sig inn á tiltekið vefsetur, svari þar ákveðnum spurningum um efni myndarinnar og út út því komi svo aldursmerking og innihaldslýsing. Með nýja kerfinu kemur ný aldursflokkun og geta myndir nú verið bannaðar innan sjö ára og átján ára, en þar er miðað við að fólk sé lögráða. Þá verða einnig innihaldslýsingar eða efnisvísar þar sem tilgreint er hvers vegna mynd er bönnuð. Barnaverndarstofu hefur verið falið fylgjast með því að lögunum sé fylgt. Hallgrímur segir að menn þar á bæ geti beitt sektum og farið fram á að myndir séu endurmerktar. Ef svo fari hafi útgefendur einungis viku til að gera það og það sé gífurlegur kostnaður sem fylgi því að taka t.d. eina DVD-mynd úr hverri einustu hillu í landinu. Þessar breytingar séu mjög til hagsbóta að mati SMÁÍS, bæði vegna aðhalds á markaði og ekki síður fyrir neytendur og foreldra.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira