Segir Björn Inga á barmi taugaáfalls 20. maí 2006 18:45
Össur Skarphéðinsson segir aðstoðarmann forsætisráðherra tala í umboði ráðherrans, þegar hann hótar því að slakt gengi Framsóknarflokks í komandi kosningum muni bitna á ríkisstjórnarsamstarfinu. Ummæli Björns Inga Hrafnssonar í gær bera þess merki að þar tali maður á barmi taugaáfalls segir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Björn Ingi sagði í gær að ef Framsóknarflokkurinn næði ekki inn manni í borgarstjórn í vor myndi það hafa alvarleg áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Framsóknarmenn myndu ekki sitja undir því að taka einir á sig óvinsældir ríkisstjórnarinnar. Í þættinum Skaftahlíð á NFS í dag útskýrði Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokks ummæli Björns Inga með því að þar talaði maður sem væri nánast á barmi taugaáfalls. Sigurður Kári segist ekki trúa því að forysta Framsóknarflokksins sé sama sinnis og Björn Ingi, enda standist skýringar hans á slöku gengi flokksins í borginni ekki nánari skoðun. Össur Skarphéðinsson er á öðru máli. Hann telur öruggt að Björn Ingi hafi talað í umboði forystu flokksins. Hvað sem öðru líður sína ummæli aðstoðarmanns forsætisráðherra frá því í gær að úrslitin í sveitastjórnarkosningunum gætu haft veruleg áhrif á landsmálin. Ekki síst ef Framsóknarflokkurinn kemur jafnilla út og skoðanakannanir benda til. Sigurður Kári telur að ef svo færi yrði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra að hugsa sinn gang vandlega. Össur tekur í sama streng og segir að ef Framsóknarflokkurinn næði ekki inn manni væri það áfellisdómur þjóðarinnar yfir flokknum.
Fréttir Innlent Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira