Innlent

Hafnar frestun skattalækkana

Félag launþega í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík, Óðinn, hafnar öllum hugmyndum þess efnis að dregið verði úr eða frestað fyrirhuguðum skattalækkunum ríkisstjórnarinnar.

Benda þeir á að stefna Sjálfstæðisflokksins við síðustu kosningar hafi verið að lækka skatta og með frestun sé verið að hafa löngu tímabærar skattalækkanir af almennu launafólki. Krefjast þeir þess að stjórnvöld stýri gerðum sínum í samræmi við gefin loforð við kosningar og leiti annarra leiða til að slá á þá þenslu sem nú ríkir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×