Sérstakur bílaþjófnaður 27. júní 2006 07:45 Fullkomnar þjófavarnir komu ekki í veg fyrir að þessum Benz CLK 500 væri stolið aðfaranótt 17. júní. Hans er enn leitað.
Lögreglan í Reykjavík er engu nær um hvar Mercedes Benz CLK 500 sportbíll, sem stolið var úr miðborginni aðfaranótt 17. júní, er niðurkominn. Hefur stuldurinn vakið athygli enda er bíllinn búinn afar fullkomnum þjófavarnarbúnaði og ekki á færi hverra sem er að stela honum. Engir lyklar ganga að bílnum, hann opnaður með fjarstýringu. Þjófavörn fer í gang við það eitt þegar bíllinn er snertur eða reynt að opna hann á annan hátt og skynjarar eiga einnig að fara í gang, sé honum lyft upp, en algengt er erlendis að bílum sé stolið á þann hátt. Var algengt um tíma að bílaþjófar rændu glæsikerrum í Vestur-Evrópu og flyttu þær til Austur-Evrópu. Að sögn lögreglumanna sem Fréttablaðið náði tali af er afar óalgengt að svo dýrum bílum sé stolið og engin merki séu um það hér á landi að um skipulagða starfsemi sé að ræða. Eitt til tvö önnur dæmi hafa komið upp á síðustu árum. Ekkert bendir til að samtök eigi þar hlut að máli. Bifreiðin er með skráningarnúmerin ZY643 og var stolið frá Sóleyjargötu og er þeim sem upplýsingar hafa bent á að hafa samband við lögregluna í Reykjavík.
Innlent Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Sjá meira