Martröð rómantíska bítilsins 25. október 2006 11:30 Davíð Steingrímsson. Aðdáandi McCartneys númer eitt hér á landi og segir Mills vera að ljúga upp á sinn mann.
Bresku blöðin kalla þetta skilnað aldarinnar og aðrar fréttir hafa gjörsamlega fallið í skuggann af máli Paul McCartney og Heather Mills. Fréttablaðið skellti sér baksviðs á sápuóperuna sem virðist vera í uppsiglingu. Paul McCartney og Heather Mills komu fram sem samrýmdar manneskjur og virtust stíga til jarðar saman þegar þau tilkynntu breskum fjölmiðlum og almenningi um skilnað sinn eftir fjögurra ára hjónaband. Okkur hefur fundist það mjög erfitt að lifa eðlilegu lífi með þessum stöðuga átroðningi fjölmiðla inn í líf okkar, sagði meðal annars í yfirlýsingunni. Okkur finnst það því mjög sorglegt að tilkynna að við höfum ákveðið að skilja að skiptum en sem vinir og viljum gjarnan fá frið á þessum erfiðu tímum. Adam var hins vegar ekki lengi í paradís.Stella McCartney.Mills fer í mál við fjölmiðla Fréttir síðustu viku hafa verið í sápuóperustíl. The Daily Mail komst á undarlegan hátt yfir hluta skilnaðarskjalanna sem Mills ætlar að leggja fram við réttarhöldin en þau eiga að hefjast snemma á næsta ári. Þar segir Mills að McCartney hafi lamið sig og beitt sig andlegu ofbeldi. Nýjar fréttir benda til þess að sumt af starfsfólki Lindu heitinnar McCartney hafi varað Heather við ofbeldisfullri hegðan Paul. Í gær tilkynnti Mills síðan að hún ætlaði í mál við The Daily Mail og The Sun vegna fréttaflutnings þeirra af málinu og sagðist fyrirsætan vera skotspónn þarlendra fjölmiðla. Vinir bítilsins urðu fokillir yfir þessum fréttum og lýstu því yfir í blöðunum að Mills væri algjör geðsjúklingur sem hefði hagað sér svo brjálæðislega að þeir hefðu reynt að fá McCartney til að losa sig við hana. Margir þeirra komu meira að segja fram undir nafni. McCartney sneri síðan vörn í sókn, sagði Heather hafa reynt að rústa feril sinn meðan á hjónabandinu stóð, eytt öllum peningum sínum og jafnvel beitt sig ofbeldi. Orð standa því gegn orði en breska pressan virðist hafa tekið málstað McCartneys enda tónlistarmaðurinn elskaður af þjóð sinni. Aðdáendur McCartneys hafa jafnframt lýst yfir miklum stuðningi við Paul eins og sjá mátti í Fréttablaðinu í gær þegar Davíð Steingrímsson, aðdáandi McCartney númer eitt, sagði Mills vera skemmda og málatilbúnaður hennar lygi. Í hans tónlist eru allir textarnir um ást, hlýju og vinskap og fjölskyldu, sagði Davíð.Myndirnar af Heather Mills í erótískum stellingum vöktu mikla athygli.Klám og vændi Skuggaleg fortíð fyrirsætunnar hefur jafnframt komið fyrir sjónir almennings. The Daily Mail birti skömmu eftir skilnaðinn djarfar myndir af Mills í heitum leik við þýskan ljósmyndara sem komu fyrst út í bókinni Die Freuden Der Liebe eða Unaðssemdir ástarlífsins. Ekki skánaði ástandið hjá Mills þegar News of the World birti stóra frétt á forsíðu sinni skömmu seinna sem gaf til kynna að Mills hefði selt líkama sinn hæstbjóðanda og hefði meðal annars verið reglulegur rekkjunautur vopnasalans Adnan Khashoggi. Í fyrstu vildi Paul ekkert af þessu vita og jafnvel þegar þau gengju í hjónaband bauðst Heather til að skrifa undir kaupmála en Paul hafnaði því, sagði það vera órómantískt. Heather hefur alltaf þurft að verja sig gegn árásum fjölmiðla um að hún sé gold digger, að hún sæktist eingöngu eftir peningum bítilsins sem er 29. ríkasti maður Bretlands. Paul hefur jafnan tekið upp hanskann fyrir Mills, varið hana með kjafti og klóm og fór meira að segja fram á viðtal í The Sun þar sem hann sagði engin vandamál vera milli Mills og dóttur sinnar, Stellu McCartney. Þegar flett er upp í alþjóðlegum myndabönkum má hins vegar sjá að Mills var aldrei neitt sérstaklega áhugasöm um frama stjúpdótturinnar, lét helst ekki sjá sig á tískusýningum hennar og aldrei án síns heitt elskaða. Nú er jafnvel talið að McCartney vilji að lögfræðingar hans noti hina skuggalegu fortíð Mills gegn henni í réttarsalnum.Góðu verkin komu þeim saman Þótt hatrið sé áberandi á milli Mills og McCartney um þessar mundir voru það hin góðu verk sem leiddi þau saman. Mills og McCartney kynntust á góðgerðarsamkomu árið 1999 til styrktar fólki sem hafði örkumlast í stríði en Mills varð sjálf fyrir því að missa annan fótinn þegar mótorhjól keyrði á hana. Paul hafði þá nýverið fylgt eiginkonu sinni Lindu McCartney til grafar og voru margir sem furðuðu sig á því hversu stuttan tíma það tók fyrir McCartney að jafna sig á þessari miklu sorg. Hann neitaði þó alfarið að eiga í ástarsambandi við Mills og sagði samband þeirra algjörlega fagmannlegt. Ég vil bara styðja við það góða starf sem Heather er að vinna, sagði Paul árið 1999. Ári síðar tilkynnnti bítillinn hins vegar að hann væri kominn með nýja konu hún væri Heather Mills. Mills og McCartney eiga saman eina dóttur, Beatrice, og hafa læknar sagt það vera kraftaverki næst að Mills lifði af fæðinguna. McCartney er sagður krefjast þess að fá fullt forræði yfir henni og er líklegt að sú krafa hans hafi hleypt öllu í bál og brand. Sérfræðingar í skilnaðarmálum eru ekki sammála um hvernig málið verði til lykta leitt. Sumir telja að McCartney muni jafnvel skrifa stóran tékka til að losna við Heather en aðrir segja öruggt að hann muni fara með málið alla leið, klækir Mills hafi ekki borgað sig heldur muni hún tapa miklum fjárhæðum á þessari fjölmiðlasápu.
Menning Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Tónlist 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Fleiri fréttir „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Sjá meira