Myndir, vatn og þögn 17. október 2006 12:30 Bjargey Ólafsdóttir vinnur með Hörn Harðardóttur að hljóðinnsetningu um þrá kvenna eftir óskilgetnum börnum. MYND/Valli
Sérstök vídóverka- og gjörningakvöld verður haldin í Tjarnarbíói í tengslum við myndlistarhátíðina Sequences en í dagskráin þar hefst í dag kl. 17 þegar myndlistarkonurnar Bjargey Ólafsdóttir og Hörn Harðardóttir flytja þar hljóðinnsetningu þar sem umfjöllunarefnið eru óskir kvenna um óskilgetin börn. Um kvöldið verða sýndar myndir frá 700 IS Reindeerland, alþjóðlegri stuttmyndahátíð sem haldin var á Austfjörðum í vor, en þangað bárust yfir þrjú hundruð myndir frá þrjátíu og fjórum löndum. Tuttugu myndir voru valdar til sýninga á Sequences og verður þeim varpað á Tjarnarbíótjaldið. Að lokinni sýningu myndanna verður kynningarfundur á verkefni sem kennt er við Overtures 3 en þar er um að ræða samstarfsverkefni lista- og vísindamanna sem hverfist um vatn og notkun mannsins á þeirri náttúruauðlind. Þetta er nokkurs konar upphafsfundur en markmiðið með verkefninu er að setja upp sýningu og ráðstefnu í tengslum við EXPO heimssýninguna á Spáni árið 2008, útskýrir Christian Schoen, forstöðumaður Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Bæði íslenskir og erlendir myndlistarmenn munu taka þátt í verkefninu og verður hluti þeirra á staðnum til þess að kynna það. Lokaatriði kvöldsins er síðan uppákoma þýska tónlistarmannsins Kalle Laar sem stígur á stokk um níu leytið. Kalle Laar er hluti af Overtures hópnum en hann hefur dvalið hér á landi undanfarna daga og safnað hljóðum. Hann sérhæfir sig í hljóð- og tónlistasöfnun en í verkum hans tvinnast þau saman, þar heyrast alls konar hljóð meira að segja ræður stjórnmálamanna, útskýrir Christian Schoen Þess má geta að þeir sem ekki komast á viðburði Sequences hátíðarinnar en vilja samt sem áður taka þátt geta stillt útvarpstæki sín á tíðinina FM 106,5. Þar útvarpar myndlistarmaðurinn Finnbogi Pétursson þögn á meðan á hátíðinni stendur. Fólk kannast við það þegar maður stillir útvarpið og finnur enga rás þá heyrist samt sem áður eitthvað en Finnbogi mun útvarpa algerri þögn á sinni rás, segir Christian að lokum. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á heimasíðunni www.sequences.is.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira