Exista kaupir VÍS eignarhaldsfélag 31. maí 2006 18:17
Fjárfestingarfélagið Exista hefur keypt VÍS, eignarhaldsfélag. Kaupin eru undirbúningur í skráningu í Exista í Kauphöll Íslands en það mun verða eitt stærsta félagið í Kauphöllinni. Exista ehf er fjárfestingarfélag í eigu Bakkabræðra holding, Kaupþings banka og sjö sparisjóða. Heildareignir félagsins um síðustu áramót námu rúmlega 160 milljörðum króna og er félagið stærsti hluthafinn í Kaupþingi banka, Bakkavör Group, Flögu Group og Símanum. Exista hefur nú keypt 100% hlut í VÍS eignarhaldsfélagi en það átti fyrir um 20% hlut í fyrirtækinu. Kaupverðið er 53,2 milljarðir króna. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista segir tilganginn með kaupunum þríþætt. Í fyrsta lagi að leysa upp krosseignatengsl Exista og KB Banka, en bankinn gaf það út í dag að hann myndi greiða hluta af bréfum sem merktust út sem arð. Í öðru lagi telur hann um mjög góðan fjárfestingarkost að ræða og í þriðja lagi verði við kaupin til eitt stærsta og öflugasta fjármálaþjónustu fyrirtæki á Íslandi. Eftir kaup Exista á VÍS eignarhaldsfélagi verða stærstu hluthafarnir í Exista Bakkabræður með 47,4% hlut, næst kemur svo Kaupþing banki með 20,9% hlut en hann mun vera búinn að selja allan hlut sinn fyrir lok septembermánaðar. Þriðju í röðinni eru síðan SPRON með 6,3% hlut. Kaupin eru liður í undirbúningi að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands sem er fyrirhuguð í september næstkomandi. Félagið verður næst stærsta félagið í Kauphöll Íslands. Heildareignir fyrirtækisins eru um 300 milljarða. Eigið fé 153 milljarðar og um 400 manns starfa hjá fyrirtækinu. Lýður segir svið fyrirtækisins nú spanna allt frá vátryggingum, eignarleigustarfsemi, fjárfestingum og öryggisþjónustu. Efnahagsreikingurinn hjá Exista er 288 milljarðar og eigið fé er ríflega 153 milljarðar en Lýður segir fyrirtækið verða það annað stærsta á í Kauphöllinni á eftir KB Banka.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira