Tillögur um Löngusker steyta á skeri 24. apríl 2006 18:48
Fáránlega vitlaus hugmynd segir bæjarstjóri Kópavogs um tillögur framsóknarmanna í Reykjavík um að flytja flugvöllinn á Löngusker. Bæjarstjórum nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur, sem hlut eiga að máli, ber saman um að tillögur framsóknarmanna í Reykjavík, um flutning á flugvelllinum úr Vatnsmýrinni á Löngusker, séu óraunhæfar. Benda þeir á að sveitarfélög þeirra eigi lögsögu yfir skerjunum og að ekki verði flugvöllur færður þangað nema með samþykki þeirra. Það hefur komið fram í fréttum að fjögur nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafa hagsmuna að gæta komi til flutnings flugvallarins til Lönguskerja. Bæjarstjórar Seltjarnarness, Kópavogs og Álftanes ber saman um að óraunhæft sé að tala um flugvöll á Lönguskerjum nema í samráði við þeirra sveitarfélög enda eigi þau öll lögsögu yfir skerjunum. Að auki munu fluglínur samkvæmt tillögunum liggja yfir þessi bæjarfélög með tilheyrandi raski.Því sé það að ekki Reykjavíkurborgar að taka einhliða ákvörðun um að setja flugvöllinn á skerin. Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi segir að flugvöllur á Lönguskerjum myndi hafa veruleg áhrif lífsgæði og hagsmuni Seltyrnesinga, bæði vegna sjónmengunar og hávaðamengunar. En málið varðar einnig lögsögu. Jónmundur segir að málið snerti einnig Vesturbæinn því völlurinn hefði mikil áhrif á líf íbúa við Ægissíðu og í Skerjafirði. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir að lögsaga Kópavogsbæjar narti einnig í skerin. Hann spyr einnig útí kostnað sem hljóti að hlaupa á tugum milljarða. Hann segir hugmyndina arfavitlausa. Bæjarstjóri Álftaness er á sömu línu og kollegar hans. Lögsaga hans bæjarfélags nái einnig til Lönguskerja. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, tekur í sama streng. Hann bendir á hafa verði samráð við Garðabæ um svona tillögur þar sem flug yfir bæinn valdi hávaða og því fylgi kvaðir um hæð bygginga. Bærinn vinni nú að því að bæta lífsgæði bæjarbúa með því að draga úr hávaða
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira