Leyfir landsbyggðinni að njóta 29. júlí 2006 14:00 Tónlistarmaðurinn Dean Ferrell flytur frumlegan tónlistargjörning "Mér var tjáð að tónlistargjörningurinn hentaði betur á krám og kaffihúsum."
Kontrabassaleikarinn Dean Ferrell í ferðast nú um landið og fremur tónlistargjörning ásamt frönsku listakonunni Anne Corte sem les ljóð á móðurmáli sínu. Dean segir þetta óvenjulegan tónlistargjörning. "Ég leik meðal annars verk eftir enska tónskáldið og málaliðann Tobias Hume sem var samtímamaður Shakespeares, en náði því miður aldrei þeirri hylli sem hann átti skilið. Verkin hans voru aðallega leikin á breskum öldurhúsum á 17. öld en þau þóttu of gróf til að vera flutt í virðulegum tónlistarhúsum landans. Tobias Hume átti litríka ævi en hann gerðist meðal annars málaliði fyrir sænska konunginn og lagðist í ferðalag til Rússlands, svo dæmi séu tekin. Shakespeare gerði stólpagrín að honum í leikritinu Þrettándakvöld og ég held að hann hafi ekki verið sá eini." Dean verður klæddur í hefðbundin föt sem vinsæl voru á 17. öld, en kontrabassinn fær jafnframt upplyftingu og verður skreyttur á ýmsan hátt. "Á þennan hátt er tónlistargjörningurinn með öllu sannur þeim tíma sem hann túlkar. Þeir sem eru kunnugir barokktónlist munu skilja þetta þegar þeir sjá og hlýða á verk mitt. Það kann vel að vera að þeir sem minna þekkja til telji þetta vera eitt allsherjargrín, en það er líka allt í góðu," bætir Dean við. Tónlistargjörningurinn skiptist í tvo hluta og í fyrri hlutanum verða kráartónverk Tobias leikin. "Í síðari hluta tónlistargjörningsins verða lesin upp ljóð, til dæmis eftir samtímamenn Allen Ginsberg og Larence Ferlinghetti, en ég mun lesa og leika á kontrabassann, samtímis. Stundum leik ég liggjandi á gólfinu en þannig verður hann eins og kínverskt hljóðfæri. Öðrum stundum leik ég djass undir ljóðalesturinn en ég spila þó ekki alltaf á kontrabassann heldur notast ég einnig við það sem kallast línuballabassi, en hann er gerður út einum streng." Til að fjármagna ferðina sótti Dean um styrk hjá Félagi íslenskra tónlistarmanna en hafði ekki erindi sem erfiði. "Það er kaldhæðnislegt hvernig bón minni um styrkveitinguna var tekið. Niðurstaða úthlutunarnefndar Félags íslenskra tónlistarmanna var mjög í takt við viðtökurnar sem Tobias Hume fékk fyrir rúmum 400 árum. Mér var tjáð að tónlistargjörningurinn sem ég vænti að fremja á betri tónlistarstöðum borgarinnar, hentaði betur á krám og kaffihúsum en á hefðbundnum tónleikum," segir Dean og hlær. "Auðvitað varð ég dálítið móðgaður vegna þessa. Ég er barokksérfræðingur og leik í Sinfóníuhljómsveit Íslands, en hef ennfremur flutt þennan sama tónlistargjörning á virtum stöðum í London og París. Þá hef ég framið gjörninginn í ýmsum háskólum í Bandaríkjunum og haldið í leiðinni fyrirlestra um gamlar stillingar á kontrabassa og rannsakað hljóðfæri í 20 ár. Þetta skilur vel menntað tónlistarfólk þegar það hlýðir á gjörninginn minn og flestir munu upplifa hann sem lifandi og skemmtilegan í leiðinni." Dean segist hafa orðið það fúll vegna þessarar móttöku úthlutunarnefndarinnar að hann afréð að gefa nefndinni langt nef og leyfa fremur landsbyggðinni að njóta verksins. Dean Ferrell fremur tónlistargjörning sinn í Menningarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði kl. 20 í kvöld.bryndisbjarna@frettabladid.is
Menning Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Sjá meira