Innlent

Hækka verð á ferðum vegna gengislækkana

Ljóst er að ferðir margra Íslendinga til útlanda í sumar verða ekki til fjár, því stærstu ferðaskrifstofurnar hafa hækkað verð á öllum ferðum sínum vegna breytinga á gengi íslensku krónunnar. Hækkun á sólarlandaferð fyrir meðalfjölskyldu nemur um 25 þúsund krónum.

Helstu ferðaskrifstofur landsins hafa ákveðið að hækka verð á ferðum sínum í sumar vegna lækkunar á gengi krónunnar síðustu vikurnar, en skrifstofurnar greiða fyrir flug og gistingu í erlendri mynt. Þetta er þeim heimilt samkvæmt ferðaskilmálum og ná hækkanirnar bæði til ferða sem keyptar verða á næstunni og ferða sem gengið var frá í vetur en eru ekki að fullu greidda.

Ferðaskrifstofurnar Úrval-Útsýn, Ferðaskrifstofa Íslands og Plúsferðir, sem eru í eigu sömu aðila, hafa sent viðskiptavinum sínum bréf vegna málsins. Þar er viðskiptavinum gefinn kostur á að greiða ferðir fyrir 3. maí, ellegar hækkar verðið um tíu prósent. Þá hafa ferðaskrifstofurnar Terranova og Heimsferðir hækkað sínar ferðir um 12 prósent nú þegar og án nokkurra tilkynninga til viðskiptavina.

Þessar hækkanir þýða að dæmigerð ferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu til Mallorca um miðjan júlí sem kostaði 215 þúsund fyrir hækkanirnar kostar nú um 240 þúsund krónur miðað við 12 prósenta hækkun en um fimm þúsund krónum minna miðað við 10 prósenta hækkun.

Að sögn Helga Eysteinssonar, markaðsstjóra Úrvals-Útsýnar, hafa ferðaskrifstofurnar ákveðið svigrúm vegna gengislækkana en gengið hafi lækkað það mikið undanfarnar vikur að verðhækkanir hafi verið óumflýjanlegar. Í sama streng tekur Tómas Gestsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Heimsferða, og bendir á að kostnaður félagsins vegna gengislækkunar hafi aukist um 20 prósent . Því taki það tæpan helming kostnaðarins á sig. Hann bendir á að gengið hafi styrkst aftur síðustu daga og því sé ekki útilokað að sumarferðirnar lækki aftur en tíminn einn leiði í ljós hvort af því verði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×