Stóráfallalausir páskar þrátt fyrir hraðakstur 17. apríl 2006 20:00
Páskahelgin hefur verið stóráfallalaus og umferðin gengið greiðlega fyrir sig. Umferðin dreifist eitthvað því margir komu heim úr bústöðum og ferðalögum í gær. Einn og einn ökufantur hefur þó látið á sér kræla og stofnað lífi sínu og annarra í stórhættu með ofsaakstri.Nú rétt fyrir fréttir var ekki annað að heyra en að ökumenn væru rólegir og þolinmóðir að komast heim úr páskafríinu og allt til fyrirmyndar. Engin stórslys hafa orðið um helgina, hvorki á vegunum né annars staðar, en björgunarsveitir sinntu nokkrum útköllum, aðallega á skírdag.Lögreglan hefur verið við hraðamælingar víða um helgina en sá bíræfnasti er án efa hraðskreiður ökufantur sem lögreglan í Borgarnesi rakst á og veitti eftirför. Þrjóturinn sinnti engu leiðbeiningum lögreglu um að stöðva bílinn heldur fór svo að hann stakk lögreglu af. Lögreglubíllinn fór mest á tæplega hundrað og níutíu kílómetra hraða og því ljóst að sportbíllinn hefur þjösnast áfram á yfir tvöhundruð kílómetra hraða.Sigurður Helgason, verkefnisstjóri Umferðarstofu, segir að þó bílarnir séu kannski gerðir til að aka á þessum hraða, séu íslenskir vegir víðast hvar illa til þess fallnir. Hann bætir við að mannslíkaminn sé auk þess engan veginn í stakk búinn til að þola álagið af árekstri sem yrði á þessum hraða. Þeirra sem lenda í árekstri á slíkum hraða bíði einfaldlega bráður bani. Því séu ökufantar ekki einungis að stofna eigin lífi í hættu heldur einnig allra sem þeir mæti á veginum.Maðurinn fannst þó skömmu síðar og var sviptur réttindum á staðnum. Í reglugerð dómsmálaráðuneytisins segir að hraðakstur upp að 170 kílómetra hraða varði 70 þúsunda króna sekt og þriggja mánaða ökuleyfissviptingu. Skalinn nær ekki hærra en 170. Það er því dómara að þyngja dóminn umfram það, einnig með tilliti til þess að maðurinn sinnti ekki bendingum lögreglu.
Mest lesið „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Innlent Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Innlent Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Erlent Fleiri fréttir Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent