Jómfrúarferð Baldurs VIII á Íslandi 17. apríl 2006 19:30
Baldur áttundi fór sínar fyrstu ferðir yfir Breiðafjörðinn í dag. Örfáir árrisulir ferðamenn tóku sér far norður yfir fjörðinn en fullbókað var, og biðlisti, frá Brjánslæk. Ferjan hafði tafist út af mótvindi á leið sinni frá Hollandi, þaðan sem hún var keypt en kom loks til Stykkishólms á laugardag. Það var rólegt í morgun niðri á höfn og lítið húllumhæ þegar Hollendingurinn Baldur fór í sína fyrstu áætlunarferð á íslenskum öldum. Fólksstraumurinn liggur frekar í hina áttina, margir eru á leið heim til sín í suðurátt eftir helgina. Pétur Ágústsson, skipstjóri, sagði Baldur aldrei hafa flutt jafnmarga bíla og í dag, enda hefur aldrei verið jafnmikið pláss. Nýi Baldur er mikil samgöngubót, tæplega helmingi stærri en hinn fyrri, og tekur margfalt fleiri bíla. Þetta er þörf viðbót því síðastliðin sumur hefur bíladekkið oft verið fullt þegar rútustraumurinn er sem mestur. Þar að auki er hann um klukkutíma skemur að sigla yfir fjörðinn en fyrirrennari hans. Baldur lagðist aftur að bryggju rétt um þrjúleytið, þá kominn til baka frá Brjánslæk. Að sögn skipstjóra gekk ferðin vel, einnig lendingin í Flatey sem margir voru spenntir að sjá hvernig tækist. Bryggjan er gömul og þar að auki einungis 19 metra löng en skipið 62 metra langt. Baldur siglir nú samkvæmt áætlun, tvær ferðir á dag hvora leið, eins og venja hefur verið og margir farþegar munu njóta stóra sóldekksins í sumar þegar sólin skín eins og í dag.og margir farþegar munu njóta stóra sóldekksins í sumar þegar sólin skín eins og í dag.
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira