Innlent

Skaðbrenndir drengir vara við hættulegum leik

Bjarki Jóhannsson og Andrés Valur Jóhannsson sem brenndust alvarlega þegar þeir fiktuðu með eldfimt efni í Grafarvogi í nóvember, vilja vara aðra krakka við að leika sér með eld og eldfim efni. Andrés Valur þurfti að dvelja á sjúkrahúsi í mánuð, en Bjarki hefur legið á sjúkrahúsi frá slysinu.

Þeir léku sér að því í nóvember, skammt frá heimili sínu í Grafarvogi að kveikja í málningarþynni sem þeir fundu. Afleiðingarnar urðu þær að eldurinn læsti sig í þá og skaðbrenndust þeir. Bjarki hljóp um 100 metra leið í sjóinn til að slökkva eldinn, en Andrés Valur velti sér á jörðinni. Maður sem sá til þeirra kom þeim til hjálpar og hrindi á Neyðarlínuna. Bjarki var lagður inn á gjörgæsludeild þar sem honum var haldið sofandi vikum saman, en Andrés Valur lagður inn á barnadeild. Bjarki er enn á sjúkrahúsi, en Andrés Valur lá þar í mánuð. Bjarki hefur gengist undir tvær húðágræðslur og á töluverða meðferð fyrir höndum. Þeir félagar vilja nota þessa reynslu sína til að vara önnur börn við þeim leik sem þeir voru að leika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×