Lífið

Fyrsta platan í 14 ár

Shaun Ryder Vinnur að fyrstu plötu Happy Mondays síðan 1992.
Shaun Ryder Vinnur að fyrstu plötu Happy Mondays síðan 1992. MYND/GETTYIMAGES
Breska hljómsveitin Happy Mon­days hefur lokið upptökum á fyrstu plötu sinni í 14 ár. Shaun Ryder söngvari og félagar hans eru ekki með plötusamning en hafa tekið plötuna upp með upptökustjórunum Sunny Levine og Howie B. Meðal gesta sem koma fram á plötunni er Ry Cooder. Enginn útgáfudagur hefur enn verið ákveðinn en væntanleg plata Happy Mondays er sú fyrsta sem sveitin gefur út síðan 1992. Sveitin sendi frá sér smáskífuna Play­ground Superstar í fyrra. "Shaun syngur vel, hann rappar vel og textarnir hans eru geðveikir. Og hann lítur vel út, ég myndi ekki segja að hann væri kynæsandi en hann lítur vel út," sagði upptökustjórinn Howie B um plötuna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.