Innlent

Stefnufesta ofar stefnubreytingu

Stefnufesta en ekki stefnubreyting var slagorð forsætisráðherra í ræðu á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. Vísaði hann tali um yfirvofandi kreppu eða samdrátt á bug en taldi nauðsynlegt að bæta upplýsingagjöf um íslenskt efnahagslíf til að koma í veg fyrir villandi erlendar skýrslur. Formaður SA hvetur stjórnvöld til að sýna meira aðhald en fram til þessa í opinberum framkvæmdum.

Forsætisráðherra sagði enga þörf á stefnubreytingu ríkisstjórnarinnar þrátt fyrir óróan í hagkerfinu undanfarið. Ræddi hann um þörfina á bættri upplýsingagjöf atvinnulífsins, Seðlabankans og stjórnvalda til að koma í veg fyrir villandi umfjöllun í erlendum fjölmiðlum um íslenskt atvinnulíf og fjármálastarfsemi. Halldór sagði útlendinga vanmeta styrk og sveigjanleika íslenska hagkerfisins ekki síst sveigjanleika þess og getu til að mæta utanaðkomandi sveiflum og bregðast við þeim á skjótan og árangursríkan hátt. Sveigjanleiki hér væri meiri en í nágrannaríkjum og nefndi sem dæmi mikla þátttöku kvenna í íslensku atvinnulífi.

Halldór telur stöðuna góða þrátt fyrir allt góða og benti á að Fjármálaráuneytið spái hér um 2% hagvexti á næsta ári og rúmlega 2½% hagvexti á árunum 2008-2010. Það væri minni vöxtur en undanfarin ár en meiri en verið hefði í flestum ríkjum Evrópu undanfarin ár. Forsætisráðherra tók fyrir gagnrýni á aðgerðir eða aðgerðaleysi stjórnvalda. Sagði hann stefnufestu vera æðri stefnubreytingu. Því skyldi stóriðjuáform óbreytt sem og áætlanir um skattalækanir til handa einstaklingum. Státaði hann af styrk og sveigjanleika íslenska hagkerfisins sem hann sagði vanmetin af nágrannaríkjum sem byggju við minni sveigjanleika. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, sagði í sinni ræðu að hið opinbera yrði að sína aðhald í ríkisrekstrinum til að halda verðbólgunni í skefjum sem hann sagði geta valdið miklu tjóni færi hún úr böndunum. Sagði hann hætt við að kjarasamningar yrðu lausir í haust ef ekki yrði gripið í taumana. Hann sagði að stjórnvöld hefðu mátt sína meira aðhald í opinberum framkvæmdum á á sviði kjaramála og yrðu að gera það á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×