Lífið

Stolin hugmynd?

PIrates of the Caribbean Kannski var Jack Sparrow stolin persóna frá handritshöfundinum Royce Mathew.
PIrates of the Caribbean Kannski var Jack Sparrow stolin persóna frá handritshöfundinum Royce Mathew.

Handritshöfundurinn Royce Mathew hefur kært Walt Disney og framleiðandann Jerry Bruckheimer fyrir að hafa stolið hugmyndinni sinni um sjóræningjana í Pirates Of The Caribbean.

Mathew heldur því fram að hann hafi skrifað handrit sem gekk undir vinnuheitinu Supernatural Pirate Movie og segir að þar hafi skip sjóræningjans jafnframt heitið Black Pearl, líkt og skip Jack Sparrow í fyrstu myndinni.

Mathew segist einnig hafa notast við nöfnin Elizabeth og Will Turner í sínu handriti og krefst himinhárra skaðabóta frá Disney og Bruckheimer enda hefur framhaldsmyndin, Dead Man¿s Chest, malað gull í Evrópu og Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.