Ægivald framleiðenda í X-Factor 18. október 2006 12:00
Keppendum í X-Factor er gert skylt að skrifa undir samninga eins og gengur og gerist í raunveruleikaþáttum og er hann þýddur beint frá Freemantle-fyrirtækinu sem á réttinn á þættinum en hann verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur. Eitt ákvæðið vekur hvað mesta athygli en þar er tekið skýrt fram að: Framleiðendur mega, að eigin geðþótta, ómerkja ákvörðun lærimeistaranna eða úrslit atkvæðisgreiðslu almennings hvenær sem er á meðan á keppninni stendur. Þegar Fréttablaðið hafði samband við Þór Freysson, framleiðslustjóra þáttanna, vissi hann af þessu ákvæði en tók skýrt fram að þetta væri ákveðinn varnagli til varnar þættinum sjálfum. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst voru reglur um atkvæðagreiðsluna mun skýrari í Idol-keppni Stöðvar 2 enda réð hún þar algjörum úrslitum um framtíð keppenda. X-Factor er fyrst og fremst sjónvarpsþáttur og við þurfum að passa upp á það, útskýrir Þór en áréttaði að hann teldi mjög ólíklegt að þessu ákvæði yrði beitt og lýsti því yfir að ef svo ólíklega kynni að fara yrði það án nokkurs vafa gert opinbert. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst eru þessar reglur settar ef að framleiðendur sjá fram á að vinsælir eða góðir keppendur gætu verið á leiðinni úr sjónvarpinu. Þór bendir ennfremur á að keppendum verði vísað úr keppni með allt öðrum hætti en var í Idol-keppninni því annað hvort munu tveir neðstu berjast um eitt laust sæti og mun dómnefndin skera úr um hvor var betri eða að sá þátttakandi sem varð neðstur í atkvæðagreiðslu verði vikið úr keppni beint.
Menning Mest lesið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Lífið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Tíska og hönnun Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Lífið Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Lífið Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Lífið Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sjá meira