Brennandi áhugi á íþróttum vegur upp á móti vinnutímanum 18. október 2006 18:15 þorsteinn gunnarsson Formaður Samtaka íþróttafréttamanna segir það ekki fyrir hvern sem er að vera íþróttafréttamaður. MYND/GVA
Samtök íþróttafréttamanna eru fimmtíu ára í ár og fagna afmælinu í Eldborg við Bláa lónið laugardaginn 28. október. Að sögn Þorsteins Gunnarssonar, formanns Samtaka íþróttafréttamanna, verður mikið um dýrðir á afmælinu, enda sannarlega tilefni til og hefur undirbúningur staðið yfir frá því í sumar. Á meðal gesta í afmælisveislunni verða íþróttafréttamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð og þá mun Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mæta á staðinn. Veislustjóri verður Hermann Gunnarsson. Þorsteinn segir það ekki fyrir hvern sem er að vera íþróttafréttamaður. Þeir endast aðeins í þessu starfi sem hafa brennandi áhuga á íþróttum og þeirri spennu og oft á tíðum óvæntu atburðarrás sem fylgir starfinu. Vinnutíminn er ekki sérlega fjölskylduvænn, eða aðallega á kvöldin og um helgar og því er þetta ekki fyrir hvern sem er, segir Þorsteinn. Mér finnst reyndar merkilegt hversu litlar breytingar hafa verið á mannskap á sumum miðlum undanfarin ár sem sýnir að íþróttafréttamenn eru ánægðir í sínu starfi, enda fjölbreytt og skemmtilegt og mikil forréttindi að starfa við sitt áhugamál, segir hann. Að sögn Þorsteins voru Samtök íþróttafréttamanna aðallega stofnuð á sínum tíma til þess að standa að kjöri Íþróttamanns ársins sem þau hafa gert með sóma allar götur síðan. Samtökin vinna einnig að ýmsum hagsmunamálum fyrir félagsmenn og stuðla að aukinni samvinnu félagsmanna, eins og segir í lögum samtakanna. Aðstaða íþróttafréttamanna á leikvöngum og íþróttahúsum hefur breyst til batnaðar undanfarin ár en að sögn Þorsteins er reyndar víðar potturinn brotinn í þeim efnum og þar ætla samtökin að beita sér meira á næstunni. Öllum fyrrverandi íþróttafréttamönnum er boðið í afmælisveisluna og vill Þorsteinn hvetja þá til þess að mæta með maka sína, en margir þjóðþekkir aðilar hófu fjölmiðlaferil sinn sem íþróttafréttamenn. Áhugasamir skulu senda póst á netfangið thorsteinn.gunnarsson@365.is. Miðaverð fyrir fyrrverandi félaga er 2.400 krónur.
Menning Mest lesið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Lífið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Tíska og hönnun Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Lífið Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Lífið Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Lífið Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sjá meira