Lífið

Smásálarhátturinn drepur

Í kvöld frumsýnir leikhópurinn Benóný Bender Abroad leikritið Páll Heimir, ekki Jesúbarnið í Sjómannasafni Íslands við Grandagarða. Leikritið er eftir tvo unga höfunda sem hér þreyta frumraun sína á því sviði, Sigurður Unnar Birgisson og Tyrfingur Tyrfingsson eru á tvítugsaldri og hafa samið verk sem hinn síðarnefndi lýsir sem „póstmilleniumrúnki“ en Tyrfingur er jafnframt leikstjóri sýningarinnar.

„Verkið fjallar um Pál Heimi sem ákveður að hengja sig. Hann er andlega dauður og kennir áhorfendunum um það og smásálinni líka. Smásálarhátturinn getur drepið, ef einhver er umkringdur svo erfiðu og leiðinlegu fólki getur það hreinlega drepið mann. Svo Páll Heimir ákveður að drepa sig líkamlega líka.“ Í verkinu eru síðan sagðar litlar sögur af fyrrgreindum Páli út frá nokkrum sjónarhornum.

Tyrfingur útskýrir að aðstandendur sýningarinnar séu allir „fyrrverandi, núverandi og verðandi MH-ingar“. Um tónlistina sjá Högni Egilsson og Guðmundur Óskar úr hljómsveitinni Hjartalín.

Fyrirhugaðar eru fimm sýningar á verkinu, hin fyrsta í kvöld kl. 20 og síðan ein á hverju kvöldi fram á miðvikudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.