Lífið

Áreittur í Jay Leno

colin farrell Kona ruddist upp á svið í spjallþætti Jay Lenos þar sem hann var gestur.
colin farrell Kona ruddist upp á svið í spjallþætti Jay Lenos þar sem hann var gestur. MYND/gettyimages

Leikarinn og partídrengurinn Colin Farrell lenti í leiðinlegu atviki í spjallþætti Jay Leno á dögunum. Farrell var að koma í þáttinn til að kynna nýjustu mynd sína Miami Vice og á meðan hann spjallaði við Jay Leno ruddist kona upp á svið og byrjaði að blóta honum í sand og ösku.

Áhorfendur héldu fyrst að um grín væri að ræða enda einkennast þættirnir af alls kyns uppá­komum. Öryggisverðir náðu að koma konunni út og það síðasta sem hún öskraði var „sjáumst í réttarsalnum“ við Farrell og hann svaraði bara „þú ert galin“.

Konan hefur kært Farrell áður fyrir áreiti en ekki hafa komið nein sönnunargögn í ljós sem geta sýnt fram á það. Eftir þáttinn fór Farrell á frumsýningu myndar sinnar umkringdur öryggisvörðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.