Verður að búast við því versta 15. apríl 2006 20:15 MYND/Þorvaldur Ö. Kristm.
Í gær sinntu björgunarsveitir fimm hjálparbeiðnum, þar af þremur vegna vélsleðamanna. Vélsleðamaður sem NFS talaði við segir afar mikilvægt að búa sig undir það versta til þess að láta breyttar veðuraðstæður ekki koma sér í opna skjöldu. Ávallt skuli taka með sér meiri föt en þörf sé á í góðu veðri í upphafi ferðar og aukanesti, jafnvel þó ætlunin sé bara að fara í örstutta ferð. Mikið hefur mætt á björgunarsveitarfólki í páskafríinu enda er þetta yfirleitt einn mesti ferðatími vorsins. Þá eykst örtröðin enn þegar sól skín á fjöllum og nægur snjór er til að þeysa um á vélsleðum. Að fara á fjöll er góð skemmtun. En við búum á Íslandi þar sem skjótt skipast veður í lofti og það sem á bara að verða skemmtilegur skreppitúr í glaðasólskini getur hæglega breyst í þrautagöngu um heljarslóð. Það verður seint fullbrýnt fyrir fólki að búa sig vel fyrir útivist og fjallaferðir. Að sögn Ríkarðs Sigmundssonar, vélsleðamanns og félaga í Landssambandi íslenskra vélsleðamanna, verður alltaf að búast við því versta. Fyrst og fremst verður fólk að vera vel klætt, og helst með aukaföt ef veðurhorfur breytast til hins verra. Til þess að kunna fótum sínum forráð verður ferðafólk að hafa nauðsynlega fylgihluti: kort, og gps eða áttavita, kunna að nota búnaðinn sinn og hafa aukabatterí í öll raftæki. Fjarskiptatæki eru nauðsynleg ef eitthvað kemur upp á, talstöðvar og NMT-símar eru enn sem komið er betri en gemsinn. Og snjóflóðaýlar eiga að vera skylda í öllum vetrarferðum. Ríkarður segir mikilvægt að gera sér grein fyrir því að þegar komið er upp á jökul eru menn oftast komnir upp í 600-800 metra hæð og því veðuraðstæður gjörólíkar því sem fólk á að venjast á láglendi, jafnvel allt önnur árstíð en í höfuðborginni. Að auki sé varasamt að treysta um of á góða veðurspá, þó vissulega sé mikilvægt að kíkja á veðurspána og hafa hana í huga.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira