Prestar taki upp blessunarform fyrir samkynhneigða 26. apríl 2006 19:15
Kenningarnefnd Þjóðkirkjunnar leggur til að tekin verði upp sérstök form á blessun staðfestrar samvistar samkynhneigðra para. Tillögur að blessunarformunum voru kynntar á prestastefnu og eru prestar hvattir til að nota þau á næsta ári til reynslu, eða þar til þjóðkirkjan tekur endanlega ákvörðun um hvort eða hvernig hún komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra. Kenninefnd þjóðkirkjunnar skilaði í dag drögum að ályktun um staðfesta samvist. Hún var unnin eftir að nefnd á vegum forsætisráðherra beindi því til þjóðkirkjunnar að hún vígði samkynhneigða sem hjón. Svokallaðri Helgisiðanefnd var því falið að gera tillögur að blessunarformum til að staðfesta samvist samkynhneigðra og skilaði hún þremur slíkum. Halldór Reynisson, verkefnastjóri á Biskupsstofu, segir að með blessunarformi sé átt við ritúal eða athöfn fyrir þennan þátt. Tillögurnar eru til kynningar og eru prestar hvattir til að nota formin á næsta ári og greina svo frá reynslunni á prestastefnu 2007. Halldór segir kirkjuna ætla að taka sér tíma til að ákveða hvort hún komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra, þ.e. hvort talað verði um hjónaband þegar samkynhneigðir verða gefnir saman. Ríkið feli kirkjunni að vera aðili að hjúskaparstofnun karls og konu en spurning er hvort kirkjan komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra. Drögin í dag eru aðeins liður í verkferli sem lýkur þarnæsta haust. Halldór segir að ætlunin sé að málið fari í lýðræðislega umræðu næsta árið, málið komi svo aftur fyrir prestastefnu og leikmannastefnu og loks endanlega fyrir Kirkjuþing 2007.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira