Fyrsta flokks flytjendur 10. ágúst 2006 16:00 Flytjendur á kammerhátíð á Klaustri Sigrún Eðvaldsdóttir, Víkingur Heiðar Ólafsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Franciso Javier Jáuregui og Stefán Jón Bernharðsson. MYND/Hörður
Á sumarmánuðum er jafnan mikið um dýrðir í tónlistarlífinu á landsbyggðinni og um helgina er komið að árlegri kammertónlistarhátíð á Kirkjubæjarklaustri. Náttúrufegurðin er rómuð í nágrenni Klausturs en ekki verður fegurð tónlistarinnar síðri. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópransöngkona og listrænn stjórnandi hátíðarinnar, mun ásamt fríðu föruneyti úrvals tónlistarfólks flytja nýjar og gamlar perlur á þrennum tónleikum í félagsheimili Kirkjubæjarklausturs fyrir Skaftfellinga og aðra gesti. Guðrún Jóhanna útskýrir að þetta sé í fyrsta sinn sem hún taki að sér að skipuleggja viðlíka tónleikadagskrá, en hún hefur tekið mikinn þátt í flutningi kammertónlistar frá því að hún byrjaði að syngja. „Ég hef reyndar ekki verið í mikilli menningarskipulagningu síðan ég var í stjórn Leikfélags MH,“ segir hún kímin, „en ég hafði það að leiðarljósi að vera með sem besta tónlist með góðum tónlistarmönnum. Fyrst ákvað ég með hverjum ég vildi vinna og síðan ákvað tónlistarfólkið efnisskrána í sameiningu. Við tókum okkur góðan tíma í það og þetta verða mjög fjölbreyttir tónleikar, tónlist allt frá 16. öld til ársins 2006.“ Flytjendur á hátíðinni eru einvalalið því auk Guðrúnar Jóhönnu, sem hefur verið að gera það gott á tónleikahúsunum á Spáni, koma Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari, Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, Stefán Jón Bernharðsson hornleikari og Franciso Javier Jáuregui gítarleikari fram á tónleikunum að ógleymdri Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara. „Við munum öll sex koma fram á tónleikunum þremur og á tónleikunum verður blandað saman nýrri og eldri verkum,“ útskýrir Guðrún Jóhanna. Efnisskráin spannar allt frá þekktum klassískum sönglögum til íslenskrar og erlendrar nútímatónlistar. „Við flytjum til dæmis ljóðaflokk eftir Edvard Grieg sem þykir einn af bestu ljóðaflokkunum sem samdir hafa verið fyrir kvenrödd og píanó, horntríó eftir ungverska tónskáldið Ligeti sem þykir með bestu kammerverkum síðustu þrjátíu ára og við munum líka flytja spænsk lög eftir Tarragó sem ég efast um að hafi verið flutt hér á landi. Síðan verða svona slagarar líka, til dæmis mjög falleg lög eftir Schubert og Ravel.“ Guðrún Jóhanna segir að hátíðin sé einkar skemmtilegt tækifæri fyrir tónlistarfólkið því flest séu þau búsett erlendis og því gefist þeim ekki mörg tækifæri til þess að leika saman hérlendis. Fyrstu tónleikarnir fara fram annað kvöld kl. 21 en síðari tónleikarnir eru á laugardaginn kl. 17 og á sunnudaginn kl. 15. Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðunni www.klaustur.is.
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Sjá meira