Tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar á kjörskrá 17. maí 2006 17:30
Um tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar hafa kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum í vor en í kosningunum fyrir fjórum árum. Þá hafa nærri 2500 manns þegar neytt atkvæðisréttar síns í utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Laugardalshöll frá mánaðamótum. Fram kemur á vef félagsmálaráðuneytisins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, kosningar.is, að nærri 4500 erlendir ríkisborgarar hafi rétt til að kjósa í kosningunum eftir tíu daga. Eru það töluvert fleiri en fyrir fjórum árum þegar um 2150 erlendir ríkisborgarar höfðu kosningarétt. Fjöldi þeirra hefur því ríflega tvöfaldast á fjórum árum og eru þá ótaldir það fólk af erlendu bergi brotið sem hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt á síðustu árum. Um eitt þúsund erlendir ríkisborgarar sem hafa kosningarétt nú koma frá einhverju hinna norrænu ríkjanna en til þess að öðlast kosningarétt þurfa þeir að hafa búið hér samfellt í þrjúr ár fram á kjördag. Aðrir erlendir ríkisborgarar þurfa hins vegar að hafa búið hér í fimm ár samfellt. Í þeirra hópi eru Pólverjar langfjölmennastir á kjörskrá eða 822. Fillippseyingar eru næstfjölmennastir eða um 280, Þjóðverjar um 250 og Bandaríkjamenn 234. Þessir kjósendur geta líkt og aðrir greitt atkvæði utankjörfundar, til að mynda í Laugardalshöll þar sem nærri 2500 höfðu neytt atkvæðisréttar síns. Þar er hverjum sem er heimilt að kjósa utan kjörfundar, líka fólki sem ekki býr í Reykjavík. Reykvíkingum er hins vegar bent á að opnað hefur verið fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá vegna borgarstjórnarkosninga og geta borgarbúar nú kannað hvar þeir eigi að kjósa og í hvaða kjördeild á heimasíður Reykjavíkurborgar, reykjavík.is.
Fréttir Innlent Mest lesið Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Innlent Krúttlegi jólamarkaðurinn í félagsheimilinu endaði á borði lögreglu Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Fjórir látnir á Tenerife eftir að alda sópaði þeim úr saltvatnslaug Erlent „Við munum berjast fyrir því til síðasta dags að fá pabba aftur“ Innlent Farþeginn enn í haldi lögreglu Innlent Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Innlent Fólk farið að reykja kókaínið Innlent Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Innlent Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Fleiri fréttir Vatnshæðin aðeins lækkað í Skaftá Borgarsögusafn gagnrýnir rangfærslur varðandi Holtsgötu 10 Krúttlegi jólamarkaðurinn í félagsheimilinu endaði á borði lögreglu Húsbrot og líkamsárás Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Farþeginn enn í haldi lögreglu Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Slökkvilið kallað út vegna ammoníakleka Ummæli Þórunnar dapurleg Margt sem gildir enn í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna Fólk farið að reykja kókaínið Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Fóru ekki fram á lengra varðhald yfir lögmanninum Áhyggjufullir læknar Sjá meira