Halldór spáir ESB aðild fyrir 2015 8. febrúar 2006 19:24 MYND/Vilhelm Gunnarsson
Halldór Ásgrímsson telur að Ísland verði komið í Evrópusambandið árið 2015. Hann gagnrýnir atvinnurekendur fyrir að hafa ekki rætt þessi mál nóg, en bendir á að launaþegahreyfingin hafi gengið mun lengra. Hann segist ekki hafa rætt þetta við samstarfsflokkinn í ríkisstjórn, en telur að af pólitískum ástæðum sé ekki efni til að ræða málið á kjörtímabilinu. Forsætisráðherra var ræðumaður á Viðskiptaþingi í dag, þar sem þemað var Ísland árið 2015. Hann sagði að það væri ekki langur tími í stefnumörkun. Hann kom víða við í ræðu sinni. Sagði meðal annars að hátt gengi krónunnar stafaði að litlu leyti af stóriðjuframkvæmdum, frekar af útlánaaukningu bankanna og skuldabréfakaupum útlendinga. Þá væri tímabært að endurskoða lagaákvæði sem takmarka fjárfestingar útlendinga í sjávarútvegi. Hann sagði síðan stóru spurninguna snúast um hvort að Íslendingar verði eftir áratug með sjálfstæðan gjaldmiðil og spáði því að þá yrði þjóðin komin í Evrópusambandið. Halldór segir vinnu við þetta farna af stað, nefndir starfi á vegum stjórnmálaflokkanna og ríkisstjórnar. Hann segist ekki hafa rætt þessa framtíðarsýn sína við samstarfsflokkinn í ríkisstjórn, en taldi óraunhæft að gera ráð fyrir að eitthvað gerðist á kjörtímabilinu af pólitískum ástæðum. Hann sé ekki að varpa sprengju inn á stjórnarheimilið með þessu. Hann segist hafa reynt eftir bestu getu að efla umræðu um Evrópusambandið þann tíma sem hann var utanríkisráðherra en að skýrslur hans um evruna, stöðu sjávarútvegs og landbúnaðar hafi hlotið litla athygli í atvinnulífinu.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira